Sænskur Ólympíufari vill nú keppa fyrir Finnland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2026 08:30 Nora Lindahl sést hér vafinn í sænska fánann eftir keppni en nú vill hún keppa fyrir allt aðra þjóð. @noralindahl Hin 21 árs gamla Nora Lindahl hefur keppt fyrir hönd Svíþjóðar á heimsmeistaramóti og Ólympíuleikum. Nú vill hún frekar keppa fyrir Finnland. „
Á yngri árum hljóp ég fyrir Svíþjóð, nú vil ég ná árangri fyrir Finnland,“ sagði Nora Lindahl í fréttatilkynningu frá finnska frjálsíþróttasambandinu. Finnska blaðið Yle greinir frá því að finnska frjálsíþróttasambandið hafi haft samband við það sænska og nú hefur verið send inn umsókn til Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins. „Að sjálfsögðu urðum við mjög glöð þegar við fréttum af ósk Noru um að skipta um landslið. Við ræddum málið þegar í lok síðasta árs og nú er boltinn hjá WA,“ sagði Tuomo Salonen, íþróttastjóri finnska sambandsins. View this post on Instagram A post shared by SportExpressen.se (@sportexpressen) Lindahl, sem hleypur 100 metra og 200 metra, fæddist í Lúxemborg en hún er dóttir sænskrar móður og finnsks föður. Hún hefur búið í Espoo í Finnlandi síðan í haust. Þegar hún var sextán ára byrjaði hún að hlaupa fyrir Svíþjóð. Þar hefur hún meðal annars unnið gull á Evrópumeistaramóti unglinga í 200 metra hlaupi. Hún hefur einnig keppt fyrir Svíþjóð á EM, Ólympíuleikum og síðast á HM í frjálsum íþróttum í Tókýó í september. Búist er við ákvörðun um landsliðsskiptin í byrjun árs, að því er Yle greinir frá, en það á eftir að koma í ljós hvenær hún fær þá að skipta um landslið. Venjan er að biðtíminn sé þrjú ár en finnska sambandið hefur sótt um að fá hann styttan. Þar sem hún keppti á HM í Tókýó gæti biðtíminn staðið allt til haustsins 2028. „Það er auðvitað svolítið leiðinlegt að ég fái ekki strax að keppa fyrir Finnland. Ég er andlega undirbúin fyrir það að ég muni ekki taka þátt í EM næsta sumar,“ segir Lindahl.
Frjálsar íþróttir Finnland Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira