Sjáðu magnaða vörslu hins 43 ára Gordon: „Ein mín besta á ferlinum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. janúar 2026 13:30 Samherjar Craigs Gordon fögnuðu honum vel og innilega eftir sigur Hearts á Dundee. getty/Ross Parker Þrátt fyrir að vera 43 ára lifir enn í gömlum glæðum hjá markverðinum Craig Gordon. Hann reyndist hetja Hearts gegn Dundee í skosku úrvalsdeildinni í gær.
Tómas Bent Magnússon og félagar í Hearts unnu Dundee, 0-1, þökk sé marki Claudios Braga. Hearts er með þriggja stiga forskot á Rangers á toppi deildarinnar en á leik til góða. Hearts þurfti heldur betur að hafa fyrir sigrinum gegn Dundee því liðið var manni færri allan seinni hálfleikinn. Undir lok þess fyrri fékk markvörðurinn Alexander Schowolow rautt spjald og Gordon var settur inn á til að verja mark gestanna. Gordon sýndi svo sannarlega hvers hann er megnugur þegar hann varði skalla Emiles Acquah undir blálokin. Hinn 43 ára Gordon skutlaði sér til hliðar, sló boltann í burtu og kom í veg fyrir að heimamenn jöfnuðu. Vörslu Gordons má sjá á 5:15 í myndbandinu hér fyrir neðan. „Þetta er sennilega ein besta varslan á ferlinum,“ sagði Gordon eftir leikinn. „Stundum kemurðu sjálfum þér á óvart sem markvörður. Ég hélt klárlega að þetta yrði mark en ég ákvað samt að fara á eftir boltanum og náði einhvern veginn að klóra í boltann.“ Fyrir leikinn í gær hafði Gordon ekkert spilað síðan í leik Skotlands og Danmerkur í undankeppni HM 18. nóvember síðastliðinn. Skotar unnu leikinn, 4-2, og tryggðu sér þar með sæti á HM í fyrsta sinn síðan 1998. Gordon, sem fæddist á gamlársdag 1982, hóf ferilinn hjá Hearts og gekk aftur í raðir liðsins 2020. Í millitíðinni lék hann með Sunderland og Celtic. Gordon hefur spilað 83 leiki fyrir skoska landsliðið. Tómas Bent lék allan leikinn fyrir Hearts gegn Dundee. Eyjamaðurinn kom til Hearts frá Val síðasta sumar. Hann hefur spilað átján af 21 leik Hearts í skosku úrvalsdeildinni á tímabilinu og skorað eitt mark. Hearts hefur komið gríðarlega á óvart í vetur og aðeins tapað tveimur leikjum í skosku deildinni. Liðið hefur unnið bæði Rangers og Celtic í tvígang. Næsti leikur Hearts er gegn St. Mirren á heimavelli á miðvikudaginn. Gera má ráð fyrir því að Gordon verji mark liðsins í þeim leik.
Skoski boltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Sjá meira