Benoný tryggði sigurinn á ögurstundu Valur Páll Eiríksson skrifar 10. janúar 2026 14:31 Benoný skoraði fyrsta deildarmark sitt á leiktíðinni. stockport Benoný Breki Andrésson skoraði sigurmark Stockport á sjöttu mínútu uppbótartíma gegn Huddersfield Town á Englandi í dag.
Um var að ræða sex stiga leik í baráttunni um umspilssæti í efri hluta ensku C-deildarinnar. Efstu tvö liðin fara beint upp í B-deild en næstu fjögur fyrir neðan, í 3.-6. sæti fara í umspil um sæti í deildinni. Stockport og Huddersfield voru jöfn að stigum í 4.-5. sætinu, með 39 stig, níu stigum á eftir Lincoln City í öðru sæti og tólf á eftir toppliði Cardiff. Bæði þykja líkleg til að fara í umspilið en baráttan er jöfn. Benoný Breki byrjaði á bekknum hjá Stockport en hann hefur glímt við meiðsli í vetur. Hann spilaði korter í leiknum á undan við Reading en hafði fyrir það ekki spilað síðan í nóvember. Hann kom inn sem varamaður þegar tæpur hálftími var eftir en lét lítið að sér kveða. Þar til í lokin. Á sjöttu mínútu uppbótartíma barst boltinn til hans í teignum og hann kom honum í netið af stuttu færi. Um er að ræða fyrsta mark Benonýs í deildinni á tímabilinu en hann var aðeins að spila sinn tólfta leik. Stockport vann leikinn 1-0 og er í fjórða sæti með 42 stig, fjórum stigum frá Bradford City sem er sæti ofar. Huddersfield er með 39 stig líkt og Bolton Wanderers, sem eru í næstu sætum á eftir Stockport.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Bournemouth | Halda norðanmenn uppteknum hætti? Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag Sjá meira