Útivinnandi og valið barnleysi með hund að bætast við útivinnandi og valið barnleysi Rakel Sveinsdóttir skrifar 8. janúar 2026 07:02 Valið barnleysi, eða DINK-parsamband, er að verða sífellt algengara en nú hefur það bæst við í umræðuna að yngri kynslóðir séu að velja lífstílinn að eignast hund en ekki börn. Er það þróunin á Íslandi líka? Vísir/Getty „Við veljum hund frekar en barn og hér eru ástæðurnar,“ segir í fyrirsögn Times í Bretlandi í vikunni (e. „We chose a dog over a baby. Here’s why“). Í greininni er ekki bara fjallað um hið hefðbundna DINK-parsamband, því nú er líka verið að tala um DINKwads.
DINK hvað? spyrja nú margir. Jú, byrjum á því að útskýra… Skammstöfunin DINK stendur fyrir Dual Income No Kids, sem þýðir útivinnandi par sem velur að eiga ekki börn. Umræðan um DINK-pör á sér reyndar mismunandi birtingarmyndir. Í Kína er DINK til dæmis oft sett í samhengi við hátt húsnæðisverð og mikið vinnuálag. Þetta ógnarvald sem vinnumarkaðurinn hefur svo lengi haft víða í Kína. Til viðbótar við að vera afleiðing barnakvótans sem þar ríkti lengi. Í Bandaríkjunum er DINK meira tengt við lífstíl. Val para um að eignast ekki börn heldur frekar að lifa til dæmis stórborgarlífi eða velja að ferðast víða. Og hratt fjölgar í þessum hópi DINK-para. Í nóvember 2025 sýndu opinberar tölur í Bandaríkjunum til dæmis að 12% giftra para á aldrinum 30-49 ára teljast nú DINK-pör. Meira að segja FORBES hefur bent á DINK-pör sem vænlegan markhóp, því þetta sé einmitt hópurinn sem sé líklegur til að eyða peningum í upplifanir og viðburði, umfram barnafólk. Umræðan í Bretlandi um DINK-parsambönd er meira tengd við álag á fólk og háa skuldabirgði. Að það að reka heimili og börn sé einfaldlega svo dýrt að fólk kjósi frekar að lifa parsambandi án þess að eignast börn. Eða seinka barneignum verulega. Það sama er uppi á teningnum á Norðurlöndunum, sem þó teljast með barnvænustu samfélögum heims. Tölurnar sýna að barneignum á Norðurlöndum fer fækkandi. Ísland er þar ekki undanskilið. Í áhugaverðu viðtali Reykjavík síðdegis við Ásdísi Aðalbjörgu Arnalds, lektor í félagsráðgjöf, haustið 2024, talar Ásdís um valið barnleysi. Um valið barnleysi segir Ásdís þróunina á Íslandi sambærilega því sem rannsóknir sýna erlendis: „Fólk sér þetta sem streituvaldandi hlutverk og við sjáum það bæði í rannsóknum hérlendis og erlendis að foreldrahlutverkið er orðið miklu fyrirferðameira en það var hér áður og foreldrar í dag eyða miklu meiri tíma með börnunum sínum en foreldrar gerðu áður.“ En hvaða DINK-tal er þetta þá, og er ekki óþarfi að reyna að innleiða eitthvað DINK-slanguryrði inn í íslenskuna? Jú, svo sannarlega er það nú ekki meiningin, enda orðið DINK svo sem aukaatriði í stóra samhenginu. Skýringin á þessu DINK-tali er hins vegar að benda á hvernig umræðan erlendis er nú í auknum mæli að beinast að útivinnandi pörum sem velja að eignast ekki börn en eiga hund. Á ensku: DINKwads, eða Dual Income No Kids with a dog. Dæmi um umfjöllun um útivinnandi og valið barnleysi með hund er fyrrgreind grein Times í Bretlandi; „We chose a dog over a baby. Here’s why.“ Í greininni kemur fram að það séu einna helst aldamótakynslóðin (f.1980-1994) og Z-kynslóðin (f.1995-2012) sem er að velja þá leið að vera DINKwads; sumsé útivinnandi fólk sem velur barnleysi en er með hund. Í Bretlandi endurspeglast þessi staða meðal annars í því að Bretar eiga 13 milljónir hunda en 15 milljónir barna. Sem getur nú ekki talist mikill munur. Enda kemur líka fram í greininni að í 34% póstnúmera á Bretlandi, búa nú fleiri hundar en börn. Eflaust þyrfti nokkra rannsóknarvinnu til að átta sig á því hvort hér fjölgar í hópi útivinnandi ungs para sem velja barnleysi en eru með hund. Og þó.... kannski að okkur takist að sjá þetta í nærumhverfinu. Að minnsta kosti segir í grein Guardian um DINK-pör frá árinu 2024 að skýrastu birtingarmyndina um DINK-lífsstílinn sé oft að sjá í færslum á samfélagsmiðlum því DINK-pör séu víst dugleg að birta þar myndir af sér úr alls kyns ferðum eða á viðburðum. Spurning um hvort þú sért að taka eftir því á þínum samfélagsmiðlum hvort DINKwads - útivinnandi og velja barnleysi með hund - fari fjölgandi?
Fjölskyldumál Tengdar fréttir Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Það eru vægast sagt fróðlegt og gagnlegt að taka samtalið við Sigrúnu Þorsteinsdóttur barna- og heilsusálfræðing og doktor í heilsueflingu um matvendni barna. 14. desember 2025 08:00 Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku „Já þetta er raunveruleiki,“ segir Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur um alvarlegar afleiðingar skjánotkunar mjög ungra barna samkvæmt breskri rannsókn sem Vísir sagði frá síðastliðinn vetur. 15. júní 2025 08:03 „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ „Oft snýst málið um flókin samskipti. Eða jafnvel samskiptaleysi,“ segir Sunna Ólafsdóttir fjölskyldufræðingur, EMDR meðferðaraðili og klínískur félagsráðgjafi hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni. 29. september 2024 08:02 Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ „Mamma var límið, við finnum svo mikið fyrir því núna, svona eftir á,“ segir Hjalti Einarsson þegar hann ræðir móðurmissinn. 8. júní 2025 08:00 Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Það er allt fullt af blóði. Eins og blóðið fossi úr hesti frekar en manneskju. Anna hleypur frá svefnherberginu og inn á klósett. Grátandi af hræðslu og í geðshræringu ; Er dóttirin dáin eða get ég reynt að þrýsta á og framkalla fæðingu strax; Næ ég að bjarga henni? hugsar hún. 18. apríl 2025 08:00 Mest lesið Þórunn Antonía frumsýnir nýtt útlit Lífið Hverjum var boðið á Bessastaði og hverjum ekki? Lífið Eyjólfur og Suzanne eignuðust stúlku Lífið Plötuverslun sniðgengur Björk og tekur tónlist hennar úr hillum Lífið Maðurinn sem vann með Elton John, ABBA og Donnu Summer Bíó og sjónvarp Snorri Másson leggi hornin á hilluna Lífið Golfkúlan hafnaði í höfði forsætisráðherra Lífið Móðguð fyrir hönd ferðaþjónustunnar Lífið Sonurinn kominn með nafn Lífið Skotin ganga á víxl um „eitraðan mömmuhóp“ Lífið Fleiri fréttir Útivinnandi og valið barnleysi með hund að bætast við útivinnandi og valið barnleysi Morð og missir, kraftaverk, hjónaskilnaðir og Forrest Gump „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Einmana um jólin og sex góð ráð Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Þegar desember verður erfiðari en hann þarf að vera Sjá meira
Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Það eru vægast sagt fróðlegt og gagnlegt að taka samtalið við Sigrúnu Þorsteinsdóttur barna- og heilsusálfræðing og doktor í heilsueflingu um matvendni barna. 14. desember 2025 08:00
Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku „Já þetta er raunveruleiki,“ segir Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur um alvarlegar afleiðingar skjánotkunar mjög ungra barna samkvæmt breskri rannsókn sem Vísir sagði frá síðastliðinn vetur. 15. júní 2025 08:03
„Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ „Oft snýst málið um flókin samskipti. Eða jafnvel samskiptaleysi,“ segir Sunna Ólafsdóttir fjölskyldufræðingur, EMDR meðferðaraðili og klínískur félagsráðgjafi hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni. 29. september 2024 08:02
Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ „Mamma var límið, við finnum svo mikið fyrir því núna, svona eftir á,“ segir Hjalti Einarsson þegar hann ræðir móðurmissinn. 8. júní 2025 08:00
Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Það er allt fullt af blóði. Eins og blóðið fossi úr hesti frekar en manneskju. Anna hleypur frá svefnherberginu og inn á klósett. Grátandi af hræðslu og í geðshræringu ; Er dóttirin dáin eða get ég reynt að þrýsta á og framkalla fæðingu strax; Næ ég að bjarga henni? hugsar hún. 18. apríl 2025 08:00