Fjallaljón banaði konu eftir að ráðist var á mann Samúel Karl Ólason skrifar 5. janúar 2026 13:08 Gary Messina, sem þurfti að berjast við þetta fjallaljón í nóvember, telur að sama ljón hafi banað göngukonu á nýársdag. AP/Gary Messina Fjallaljón er talið hafa banað konu í Colorado á nýársdag. Árásir fjallaljóna á menn eru gífurlega sjaldgæfar en maður segist hafa varist árás fjallaljóns á svipuðum slóðum nokkrum dögum áður.
Konan sem dó var á göngu í norðanverðu Colarado-ríki á nýársdag. Hún var ein á ferðinni og var að ganga lítið farna gönguleið þar sem hún dó. Áverkar fundust á líki konunnar sem bentu til þess að fjallaljón hefði banað henni og göngumenn sem komu að líkinu sáu fjallaljón þar. Þeir grýttu grjóti að ljóninu til að reka það á brott, samkvæmt AP fréttaveitunni. Í kjölfarið voru tvö slík dýr á svæðinu skotin en ekki er búið að staðfesta hvort annað þessara dýra eða þau bæði hafi banað konunni. Rannsókn á eftir að leiða það í ljós. Fjallaljón eru talin mörg á þessu svæði og sjá göngumenn þau reglulega. Árásir eru hins vegar mjög sjaldgæfar. Síðasta banvæna árás fjallaljóns á mann í Colorado var árið 1999 þegar ljón banaði þriggja ára barni. Barnið hvarf en tætt föt þess fundust þremur árum síðar. Árið 2019 réðst fjallaljón á mann í Colorado en honum tókst að verjast árásinni og banaði dýrinu. sem var ungur og líklega munaðarlaus hvolpur. Sjá einnig: Fjallaljónið sem hlaupari kyrkti var munaðarlaus hvolpur Eftir að konan dó í Colorado á dögunum steig maður fram sem sagðist hafa varist árás fjallaljóns á svipuðum slóðum í nóvember. Þá var hann að hlaupa að morgni til þegar hann sá tvö augu í runna. Í samtali við AP segist Gary Messina hafa tekið mynd af ljóninu, rétt áður en dýrið gerði sig líklegt til að ráðast á hann. Messina segist hafa varist dýrinu með því að kasta símanum í það, garga og að sparka upp ryki. Fjallljónið hafi ítrekað reynt að komast aftan að honum en eftir nokkrar mínútur hafi honum tekist að brjóta grein af tré og barið dýrið með henni. Við það hafi fjallaljónið hlaupið á brott. Messina lét vita af dýrinu og voru sett upp skilti þar sem varað var við fjallaljónum. Þau voru þó fjarlægð aftur.
Bandaríkin Dýr Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira