Óútskýrð ráðgáta í Havana endurvakti fjandskap Kúbu og Bandaríkjanna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. janúar 2026 13:48 Kúbverjar sýna samstöðu fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna á Kúbu. EPA/Yander Zamora Seint á árinu 2016 fóru bandarískir útsendarar í Havana að tilkynna um óútskýrð veikindi sem síðar fengu heitið Havana-heilkennið. Einkennin voru meðal annars höfuðverkur, svimi, jafnvægisleysi, minnistruflanir og skynjun á undarlegum hljóðum eða þrýstingi í höfði.
Prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir fjalla um þessa sérkennilegu ráðgátu í nýjum þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið, þar sem saga Havana-heilkennisins er rakin í sögulegu og pólitísku samhengi. Viðkvæmur tími í samskiptum Veikindin komu fram á viðkvæmum tíma í samskiptum Bandaríkjanna og Kúbu og áttu eftir að hafa víðtækar diplómatískar afleiðingar, þrátt fyrir að enn í dag hafi engin afgerandi skýring fundist. Hundruð bandarískra starfsmanna halda áfram að berjast við einkennin og telja sig svikna af eigin stjórnvöldum. Í tíð Baracks Obama höfðu ríkin skömmu áður endurvakið stjórnmálasamband sitt eftir meira en hálfrar aldar fjandskap. Sendiráð höfðu verið opnuð á ný, ferðatakmörkunum létt og opnað fyrir aukin samskipti milli landanna. Í nóvember 2016 var hins vegar Donald Trump kjörinn forseti Bandaríkjanna og sama ár lést Fidel Castro, byltingarleiðtogi Kúbu. Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir eru umsjónarmenn Skuggavaldsins.Vísir/Vilhelm Í fyrstu var litið á veikindin sem læknisfræðilegt vandamál, en þegar fleiri tilvik komu upp fóru bandarísk yfirvöld að greina ákveðið mynstur: einkennin virtust aðeins koma fram hjá bandarískum starfsmönnum og fjölskyldum þeirra, en ekki meðal kúbverskra ríkisborgara. Þegar læknisfræðileg skýring lét á sér standa fóru menn að velta fyrir sér hvort um vísvitandi árásir gæti verið að ræða, jafnvel með einhvers konar ósýnilegri tækni og beindust spjótin þá að kúbverskum og jafnvel rússneskum stjórnvöldum. Engar sannanir fundust þó fyrir slíkum ásökunum. Þrátt fyrir það var stór hluti starfsfólks bandaríska sendiráðsins í Havana kallaður heim og kúbverskum diplómötum vísað úr landi í Bandaríkjunum. Í kjölfarið harðnaði stefna Bandaríkjanna gagnvart Kúbu á ný, sérstaklega eftir að Donald Trump tók við embætti, og margt af því sem hafði verið opnað á Obama-tímanum var dregið til baka. Tilkynningar í öðrum löndum Síðar bárust tilkynningar um svipuð veikindi frá bandarískum starfsmönnum í öðrum löndum. Nýjustu skýrslur bandarískra yfirvalda telja ólíklegt að Havana-heilkennið stafi af leynilegum árásum erlends ríkis, og rannsóknir finna engin skýr merki um heilaáverka hjá flestum greindra. Þrátt fyrir það glíma hundruð bandarískra starfsmanna enn við einkenni og saka yfirvöld um að gera lítið úr reynslu þeirra til að forðast pólitískar afleiðingar eða þurfa viðurkenna vanmátt sinn gagnvart óvinveittu ríki. Havana-heilkennið er því enn óleyst ráðgáta. Málið sýnir hvernig óvissa og skortur á skýringum getur haft pólitískar afleiðingar, sérstaklega þegar atburðir eiga sér stað í samhengi þar sem tortryggni og sögulegur fjandskapur eru þegar til staðar. Fyrri þáttur af tveimur í Skuggavaldinu er nú aðgengilegur í hlaðvarpsveitum.
Bandaríkin Kúba Skuggavaldið Tengdar fréttir Hvers vegna halda 9/11-samsæriskenningar enn velli?Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Fáir atburðir samtímans hafa skapað jafn mikla tortryggni og árásirnar 11. september 2001. Í mörgum samsæriskenningum eru bandarísk stjórnvöld sögð hafa annaðhvort skipulagt árásirnar eða vísvitandi látið þær gerast, til að fá átyllu til hernaðar í Írak. 24. nóvember 2025 10:06 Úr inniskónum og yfir í hringiðu heimsmálanna Breska saksóknaraembættið, þá undir stjórn Keir Starmer núverandi forsætisráðherra Bretlands, þrýsti á Svía að koma böndum yfir Julian Assange. Fjármálafyrirtæki heims tóku höndum saman um að skrúfa fyrir greiðslur til Wikileaks. Ögmundur Jónasson, þáverandi dómsmálaráðherra, sendi útsendara FBI hins vegar úr landi þegar þeir komu til Íslands til að yfirheyra fólk í tengslum við afhjúpanir Wikilekas. 15. september 2025 09:02 Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira
Hvers vegna halda 9/11-samsæriskenningar enn velli?Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Fáir atburðir samtímans hafa skapað jafn mikla tortryggni og árásirnar 11. september 2001. Í mörgum samsæriskenningum eru bandarísk stjórnvöld sögð hafa annaðhvort skipulagt árásirnar eða vísvitandi látið þær gerast, til að fá átyllu til hernaðar í Írak. 24. nóvember 2025 10:06
Úr inniskónum og yfir í hringiðu heimsmálanna Breska saksóknaraembættið, þá undir stjórn Keir Starmer núverandi forsætisráðherra Bretlands, þrýsti á Svía að koma böndum yfir Julian Assange. Fjármálafyrirtæki heims tóku höndum saman um að skrúfa fyrir greiðslur til Wikileaks. Ögmundur Jónasson, þáverandi dómsmálaráðherra, sendi útsendara FBI hins vegar úr landi þegar þeir komu til Íslands til að yfirheyra fólk í tengslum við afhjúpanir Wikilekas. 15. september 2025 09:02