Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Eiður Þór Árnason skrifar 1. janúar 2026 18:13 Pétur H. Marteinsson ætlar í borgina. Aðsend/Skúli Hólm Pétur Marteinsson, rekstrarstjóri og fyrrverandi knattspyrnumaður, ætlar að gefa kost á sér í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þar fer hann á móti Heiðu Björg Hilmisdóttur, núverandi oddvita og borgarstjóra.
Pétur greinir frá þessu í samtali við RÚV og á samfélagsmiðlum en prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík fer fram 24. janúar. Pétur segist með þessu vilja bjóða fram reynslu sína, þekkingu og „einlægan áhuga á borgarmálum í það verkefni að gera góða borg enn betri fyrir alla borgarbúa.“ „Ég á að baki dýrmæt uppvaxtarár í Breiðholti, hef búið víða erlendis en hef á undanförnum árum unnið að borgarmálum í Reykjavík utan ramma stjórnmálanna og sé tækifæri til að gera borgarumhverfið skilvirkara og auka þannig velferð og lífsgæði borgarbúa til framtíðar,“ segir hann í tilkynningu á Facebook-síðu sinni. Reykjavík geti boðið upp á lífsgæði sem jafnist á við það besta sem gerist í heiminum, að sögn Péturs. „Málstaður okkar jafnaðarfólks er sterkur: Við vitum að Reykjavík gengur best þegar jöfnuður er mikill, bilið milli fólks er lítið, samhjálpin er sterk og borgarbúar hjálpast að við að gera samfélagið gott. Til þess þarf sterka liðsheild og samheldinn borgarstjórnarflokk Samfylkingarinnar sem getur sannfært borgarbúa í vor um að treysta okkur fyrir verkefninu.“ Kristrún átti samtal við Pétur Pétur Hafliði Marteinsson er fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu en auk Íslands spilaði hann í Svíþjóð, Noregi og Bretlandi. Hann rekur Kaffihús Vesturbæjar ásamt sjónvarpsmanninum Gísla Marteini Baldurssyni og er auk þess markaðsstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins OZ Sport. Fram að þessu hafði Heiða Björg borgarstjóri ein lýst því yfir að hún sæktist eftir fyrsta sætinu en heimildir fréttastofu herma að leit hafi staðið yfir innan Samfylkingarinnar að frambjóðanda sem gæti tekið við af henni. Tilkynna þarf framboð í prófkjörinu í síðasta lagi næsta laugardag en Pétur hefur ekki svarað fyrirspurnum fréttastofu síðustu daga. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, sagðist á þriðjudag hafa rætt við Pétur og aðra sem hefðu íhugað framboð fyrir Samfylkinguna. Í Kryddsíldinni í gær, gamlársdag, sagði hún það ofsögum sagt hver áhrif sín væru í þessum efnum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Hitnar undir feldi Péturs Pétur Marteinsson, veitingamaður og fyrrverandi knattspyrnukempa, hefur fram á laugardag til að tilkynna hugsanlegt framboð gegn Heiðu Björg Hilmisdóttur, sitjandi borgarstjóra Reykjavíkur, en hann hefur verið orðaður við slíkt framboð. Hann sást í viðtali við Ríkissjónvarpið fyrr í dag en hann hefur ekkert tjáð sig um málið við aðra miðla. 1. janúar 2026 16:07 Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist hafa rætt við Pétur Marteinsson, athafnamann og fyrrverandi knattspyrnumann, um hugsanlegt framboð fyrir Samfylkinguna í Reykjavík. Hann hefur verið orðaður við oddvitasæti. Kristrún segist hafa rætt við fleiri sem íhuga framboð fyrir flokkinn. 30. desember 2025 15:48 Tvö prósent vilja Heiðu sem borgarstjóra Einungis tvö prósent aðspurðra vilja að Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, verði næsti borgarstjóri samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Könnunin var opin og hlutfallslega flestir, eða um þriðjungur, sögðust óákveðnir. 5. desember 2025 18:47 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira
Hitnar undir feldi Péturs Pétur Marteinsson, veitingamaður og fyrrverandi knattspyrnukempa, hefur fram á laugardag til að tilkynna hugsanlegt framboð gegn Heiðu Björg Hilmisdóttur, sitjandi borgarstjóra Reykjavíkur, en hann hefur verið orðaður við slíkt framboð. Hann sást í viðtali við Ríkissjónvarpið fyrr í dag en hann hefur ekkert tjáð sig um málið við aðra miðla. 1. janúar 2026 16:07
Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist hafa rætt við Pétur Marteinsson, athafnamann og fyrrverandi knattspyrnumann, um hugsanlegt framboð fyrir Samfylkinguna í Reykjavík. Hann hefur verið orðaður við oddvitasæti. Kristrún segist hafa rætt við fleiri sem íhuga framboð fyrir flokkinn. 30. desember 2025 15:48
Tvö prósent vilja Heiðu sem borgarstjóra Einungis tvö prósent aðspurðra vilja að Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, verði næsti borgarstjóri samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Könnunin var opin og hlutfallslega flestir, eða um þriðjungur, sögðust óákveðnir. 5. desember 2025 18:47