Gaf fingurinn á Miklubraut Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. desember 2025 14:45 Ökumaðurinn ætlaði ekki að hleypa. Myndband þar sem má sjá ökumann pallbíls gefa öðrum ökumanni fingurinn á umdeildri aðrein við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar hefur vakið mikla athygli og skiptast ökumenn í tvær fylkingar um það hvor var í rétti. Aðalvarðstjóri biðlar til fólks um að sýna hvert öðru tillitssemi.
Myndbandinu er deilt á Facebook hópi ökumanna og er sjónarhorn ökumanns sem reynir að koma sér fremst og fram fyrir langa bílaröð með því að keyra umrædda aðrein. Ökumaður pallbíls hleypir viðkomandi hins vegar ekki fram hjá sér og nýtir aðreinina sjálfur, gefur svo ökumanninum fingurinn. Atvikið átti sér stað í gær. Miklar og heitar umræður hafa skapast um atvikið á Facebook þar sem fólk skiptist í tvær fylkingar um það hvor ökumaðurinn eigi réttinn í þessum aðstæðum. Annar hópurinn bendir á að aðreinina eigi einmitt að nýta í þetta, keyra hana alveg út á enda til þess að komast svo inn á hina akreinina. Hinn hópurinn segist hinsvegar skilja vel pirring ökumanns pallbílsins, ökumenn á aðreininni eigi að fara af henni eins fljótt og auðið er yfir á hina akreinina. Eitt, tvö og þrjú að sýna tillitssemi Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að dæmið sé fyrst og fremst áminning til ökumanna um að sýna hvert öðru tillitssemi. Um algjört smámál sé að ræða með tilliti til umferðaröryggis. „Hann má alveg vera á þessari akrein og koma sér yfir á hina, sem fyrst þá akstursstefnu sem hann hyggst nota. Vandamálið er, og ég skil að það fari í taugarnar á mörgum, að þarna eru menn, oft á miklum hraða, að þruma fram hjá kyrrstæðri röð til að reyna að koma sér fremst að, þannig þeir sem eru kurteisir og bíða þurfa oft að horfa upp á kannski tíu til fimmtán bíla troða sér þarna inn,“ segir Árni. Aðreinin sem um ræðir er ekkert sérstaklega vinsæl.Já.is „Þarna er einn sem hefur koxað á þolinmæðinni og kemur bílnum sínum svona fyrir að það sé ekki hægt að komast fram hjá. Þetta er fáránlegt. Ekki gera þetta. En á móti kemur eiga ökumenn að reyna að komast sem fyrst inn á hina akreinina, um leið og þeir hafa tök á. Þetta er algjört smámál, það sem skiptir mestu máli er að fólk sýni hvert öðru tillitssemi.“ Umferðin á Miklubraut er ansi þung þessa dagana.Vísir/Vilhelm Hann bendir á að umferðin sé einkar þung þessa dagana svo stuttu fyrir jól. Þar skipti þolinmæðin og velvild til annarra í umferðinni öllu máli. Aðreininni sem um ræðir hafi verið komið fyrir af veghaldara til að koma ökumönnum yfir sem taki vinstri beygju frá Kringlumýrarbraut og yfir á Miklubraut. „Og ætlast til að þú hafir þetta pláss, hvað er þetta, um tvö hundruð metrar minnir mig til að koma þér inn á akreinina. Hvar þú gerir það er í sjálfu sér ekkert í lögum, það er ekkert í lögum sem segir að þú eigir að nota alla akgreinina, það eina sem stendur er að þú eigir að koma þér sem fyrst inn á þá akrein sem þú ætlar að nota. En svo ertu líka með fjórðu grein umferðarlaga sem kemur inn á tillitssemi. Þannig þeir sem eru kyrrstæðir í röð eiga að sýna tillit, þetta virkar í báðar áttir. Umferðin þessa dagana er afar þung og það veitir ekki af tillitssemi.“
Umferð Reykjavík Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira