Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Tómas Arnar Þorláksson og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 20. desember 2025 12:51 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. vísir/einar Neytendasamtökunum berast í hverri viku kvartanir vegna gildistíma gjafabréfa og flestar eru vegna fyrirtækjanna Dineout og Óskaskríns. Formaður samtakanna segir gjafabréfin ekkert annað en fjárkröfu sem eigi að gilda í fjögur ár.
Gjafabréf hafa lengi verið vinsæl gjöf og færst hefur í vöxt að fyrirtæki eða stofnanir gefi starfsfólki slíkt í jólagjöf. Gjafirnar virðast þó ekki allar nýtast þar sem Neytendasamtökunum berast ítrekað kvartanir frá fólki sem lendir á vegg þegar að það ætlar að innleysa bréfin. „Þetta er handfylli af kvörtunum sem við fáum í hverri viku og fyrirspurnum líka,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Flestar kvartanir varða gildistíma gjafabréfa sem hvergi er fjallað um í lögum. Neytendasamtökin hafa þó verið þeirrar skoðunar að gildistíminn eigi að vera að minnsta kosti fjögur ár, líkt og almennur fyrningarfrestur á kröfum. „Í rauninni er engin ástæða fyrir því að þau ættu að renna út. Fyrirtækin eru komin með fjármuni inn í reksturinn sinn og geta ávaxtað hann og notað hann á meðan neytandinn er ekki búinn að njóta þjónustunnar eða vörunnar sem hann þó er með bréf upp á að hann eigi. Ég vil sjá að heiðvirð fyrirtæki setji sér sjálf þessar reglur, að það þurfi ekki að koma alltaf reglur að ofan, að fyrirtækin vinni með neytendum og séu með alvöru fyrningarfrest eins og á venjulegum fjárkröfum.“ Áður fyrr vörðuðu flestar kvartanir flugfélög en eftir að Icelandair lengdi gildistíma gjafabréfa sinna upp í fimm ár heyra þær sögunni til. Í dag eru flestar vegna Dineout og Óskaskríns en gildistími gjafabréfa beggja fyrirtækja er tvö ár. Óskaskrín býður viðskiptavinum að framlengja gildistímann um sex mánuði gegn gjaldi. Að mati Breka ættu fyrirtæki sem ekki treysta sér til að hafa lengri gildistíma á gjafabréfum að sleppa því að selja þau. Hann hvetur neytendur einnig til þess að forðast gjafabréf með stuttum gildistíma og láta reyna á þau, þrátt fyrir að bréfin séu útrunnin. „Flest fyrirtæki láta nú segjast þegar neytendur koma með gjafabréf, jafnvel þó það sé útrunnið. Það vilja þau leita leiða og finna leiðir yfirleitt til að báðir geti gengið sáttir frá borði.“
Jólagjafir fyrirtækja Jól Neytendur Verslun Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira