Enginn Óskar til Íslands 2026 Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. desember 2025 21:23 Saga Garðars fer með eitt aðalhlutverka í myndinni. Engin Óskarsverðlaun munu fara til Íslands á næsta ári en framlag Íslands - Ástin sem eftir er í leikstjórn Hlyns Pálmasonar er ekki meðal þeirra mynda sem eftir eru á stuttlista fimmtán mynda sem koma til greina til að hljóta verðlaun í flokki erlendra mynda.
Þetta má sjá á vef Óskarsins en þar var birtur stuttlisti þeirra mynda sem enn kemur til greina að muni vinna verðlaun á næsta ári. Greint var frá því í ágúst að Ástin sem eftir er yrði framlag Íslands í ár. Hátt í níutíu myndir hefja Óskarskapphlaupið en að endingu komast einungis fimmtán á stuttlistann sem kynntur var í dag. Myndin fangar ár í lífi fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Á fjórum árstíðum fylgjumst við með hversdagslífi fjölskyldumeðlima í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm augnablik sem endurspegla hið breytta samband þeirra. Hún hefur vakið athygli erlendis og var meðal annars valin í hóp fimm bestu alþjóðlegu kvikmynda ársins hjá National Board of Review. Þá var hún einnig á lista yfir bestu kvikmyndir ársins hjá þó nokkrum erlendum kvikmyndaritum á borð við The Film Stage og Sight and Sound. Myndin hefur auk þess unnið til sjö alþjóðlegra verðlauna frá því að hún var frumsýnd á Cannes í maí á þessu ári, fyrst íslenskra mynda í Cannes Premier flokki. Ástin sem eftir er var valin af dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem í sátu fulltrúar helstu fagfélaga íslenska kvikmyndaiðnaðarins auk fulltrúa kvikmyndahúsa, kvikmyndagagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin í 98. sinn sunnudaginn 15. mars 2026. Stuttlistinn var kynntur í dag, 16. desember, og eru einungis fimmtán myndir valdar í flokknum eins og áður segir. Tilnefningar til verðlaunanna verða svo opinberaðar 22. janúar 2026.
Bíó og sjónvarp Óskarsverðlaunin Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Fleiri fréttir Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira