Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Mosfellsbær 18. desember 2025 11:31 Mosfellsbær stendur að forvali vegna uppbyggingar og reksturs nýrrar þjónustu- og aðkomubyggingar við íþróttasvæðið að Varmá. Regína Ástvaldsdóttir er bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Einar Ingi Hrafnsson er framkvæmdastjóri Aftureldingar. Mynd/Hulda Margrét. Mosfellsbær stendur nú að forvali vegna uppbyggingar og reksturs nýrrar þjónustu- og aðkomubyggingar við íþróttasvæðið að Varmá. Leitað er eftir áhugasömum aðilum til þátttöku í lokuðum samkeppnisviðræðum þar sem valinn aðili mun taka að sér að hanna, byggja, eiga og reka hina nýju þjónustu- og aðkomubyggingu að Varmá.
Ákveðið hefur verið að fara leið einkaframkvæmdar en með því verður Mosfellsbær kaupandi þjónustunnar, en ekki eigandi eða rekstraraðili byggingarinnar. Markmiðið er að flýta uppbyggingu og nýta þekkingu og rekstrarhæfni einkaaðila. Mikilvægt skref í þróun íþróttasvæðisins Á íþróttasvæðinu að Varmá er nú þegar fjölbreytt aðstaða fyrir íþróttir og hreyfingu. Varmársvæðið er hjarta Mosfellsbæjar en á hefðbundum virkum degi heimsækja íþróttamiðstöðina að Varmá um 1.700 einstaklingar og enn fleiri heimsækja Varmársvæðið. Hér má sjá hvar ný þjónustu- og aðkomubygging mun rísa við íþróttamiðstöðina að Varmá. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á svæðinu undanfarin ár; endurgerð aðalvallar með gervigrasi og nútímalegri flóðlýsingu, nýtt gervigras var sett á eldri völlinn og nýr frjálsíþróttavöllur er langt kominn. Þá er verið að undirbúa nýja félagsaðstöðu fyrir Aftureldingu sem verður tekin í notkun árið 2026. Ný þjónustu- og aðkomubygging verður miðlægur inngangur og þjónustukjarni fyrir starfsemina á svæðinu auk þess að hýsa margvíslega stoðþjónustu. „Þetta verkefni er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu íþróttasvæðisins að Varmá,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. „Ný þjónustu- og aðkomubygging mun bæta alla aðkomu að húsinu, gera okkur kleift að fjölga klefum auk þess að hafa rými fyrir fjölbreytta þjónustu og bæta aðstöðu fyrir starfsfólk og þjálfara. Nýja þjónustu- og aðkomubyggingin mun vonandi bæta upplifun gesta til muna, og er mikilvægur liður í því að gera Varmá að enn öflugri miðpunkti í Mosfellsbæ fyrir hreyfingu, heilsu og félagslega samveru.“ Hér má sjá aðra mynd sem sýnir hvernig Varmársvæðið gæti litið út með nýjum gervigrasvelli, frjálsíþróttasvæði og stúku ásamt 3.000 m² þjónustu- og aðkomubyggingu. Aðgangur að gögnum og skilafrestur Forvalsgögn eru aðgengileg öllum, án endurgjalds, á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar frá og með þriðjudeginum 9. desember 2025 kl. 14. Umsóknum skal skila rafrænt eigi síðar en föstudaginn 16. janúar kl. 14. Þrívíddarmyndirnar byggja ekki á raunverulegri hönnun svæðisins heldur eru þær einungis settar fram í hugmyndaskyni.
Mosfellsbær Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira