Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Sindri Sverrisson skrifar 12. desember 2025 17:47 Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur leikið með Kolstad frá árinu 2022. Hann er meðal leikmanna sem þurfa að taka á sig launalækkun. Getty/Igor Kralj Norska handknattleiksfélagið Kolstad glímir við fjárhagskröggur og hefur nú boðað uppsagnir sem vonast er til að hjálpi við að rétta af reksturinn.
Eins og fjallað var um fyrr í þessari viku þurfa stærstu stjörnur Kolstad, á borð við íslenska hornamanninn Sigvalda Björn Guðjónsson, að taka á sig launalækkun vegna fjárhagsvandræða félagsins. Sigvaldi er fyrirliði Kolstad en einnig hafa Andreas Palicka, Gøran Johannessen, Magnus Gullerud og Simen Lyse þurft að taka á sig launalækkun, samkvæmt norskum miðlum. Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson leika einnig með Kolstad sem hefur lagt mikið í sölurnar síðustu ár til að koma sér í fremstu röð í Evrópu. árangurinn hefur verið góður heima fyrir en látið á sér standa í Meistaradeild Evrópu. Félagið spennti bogann afar hátt og voru menn á borð við Janus Daða Smárason, Magnus Rød, Torbjørn Bergerud og Sander Sagosen fengnir en hafa yfirgefið félagið. Arnór Snær Óskarsson yfirgaf félagið í haust og sneri aftur til Vals. Fækka stöðugildum Samkvæmt Adresseavisen hafa nú einnig verið boðaðar uppsagnir starfsfólks sem ekki spilar fyrir Kolstad innan vallar. Blaðið segir að 11,5 stöðugildi séu hjá félaginu en að þeim fækki auk þess sem nokkrir einstaklingar hafi þegar hætt og ekki verði ráðið í þeirra störf. Tap Kolstad árið 2024 nam 5,9 milljónum norskra króna. Vonir stóðu til að hagnaðurinn yrði þrjár milljónir í ár en það mun ekki ganga eftir.
Norski handboltinn Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Sjá meira