Sædís og Arna upplifðu grátlegt tap í Meistaradeildinni Aron Guðmundsson skrifar 10. desember 2025 20:00 Sædís Rún Heiðarsdóttir í leik með Vålerenga Vísir/Getty Sædís Rún Heiðarsdóttir og Arna Eiríksdóttir máttu þola grátlegt tap með liði sínu Vålerenga gegn Paris í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Lokatölur 1-0 sigur Parísar.
Stöllurnar úr íslenska landsliðinu voru báðar í byrjunarliði Vålerenga í kvöld en liðið þurfti að spila einum manni færri allan seinni hálfleikinn eftir að Karina Sævik lét reka sig af velli undir lok fyrri hálfleiks með rautt spjald. Vålerenga sýndi þó mikið baráttuþrek í leiknum og virtust ætla að ná að hanga á stiginu sem fæst fyrir jafntefli en þegar komið var fram í síðustu tíu mínútur leiksins var vítaspyrna dæmd eftir að boltinn hafði farið í höndina á Söru Hörte, leikamanni Vålerenga. Lorena Azzaro tók vítaspyrnuna fyrir Paris og skoraði af miklu öryggi fram hjá Tove Enblom sem stóð í marki Vålerenga. Reyndist þetta sigurmark leiksins, grátlegt tap fyrir Vålerenga á heimavelli. Liðið er sem stendur í 13.sæti Meistaradeildarinnar með fjögur stig eftir fimm leiki, einu stigi frá umspilssæti. Paris er í tíunda sæti með átta stig. Á sama tíma vann Barcelona 3-1 sigur á Benfica. Hin pólska Ewa Pajor kom Börsungum á bragðið með fyrsta marki leiksins á 29.mínútu og mörk frá Christy Ucheibe og Alexiu Putellas innsigluðu sigur Barcelona. Chandra Davidson skoraði mark Benfica. Með sigrinum tyllir Barcelona sér á topp Meistaradeildarinnar, þar er liðið með þrettán stig og þriggja stiga forskot á liðin fyrir neðan sig.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Íslendingar erlendis Mest lesið Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Íslenski boltinn „Það er hrikalegt að sjá þetta“ Íslenski boltinn Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum Íslenski boltinn KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Íslenski boltinn Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Íslenski boltinn „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Íslenski boltinn Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Fótbolti „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Ndiaye til Manchester City Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn