Udo Kier er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. nóvember 2025 12:02 Udo Kier var algjör költstjarna og átti farsælt samstarf með mörgum góðum leikstjórum, þar á meðal Rainer Werner Fassbinder, Paul Morrissey og Lars von Trier. Getty Þýski leikarinn Udo Kier, sem lék í meira en 200 kvikmyndum á ferli sínum, er látinn, 81 árs að aldri. Kier var þekktur fyrir stingandi augnaráð sitt og lék gjarnan sérstæða karaktera eða illmenni.
Maki Kier, listamaðurinn Delbert McBride, greindi Variety frá því að hann hefði látist á sjúkrahúsi í Palm Springs á sunnudag. Þurfti að grafa mæðginin úr rústunum Kier fæddist 14. október 1944 í Köln undir lok Seinni heimsstyrjaldarinnar en skömmu eftir fæðinguna varð spítalinn fyrir loftárás og þurfti að grafa mæðginin út úr rústunum. Kier ólst upp án föður og flutti átján ára gamall til Englands að læra ensku. Kier lék í ýmsum B-myndum og hrollvekjum í upphafi ferilsins. Kier hóf að leika í kvikmyndum á seinni hluta sjöunda áratugarins og kom sér á kortið með tveimur hrollvekjum, Flesh for Frankenstein (1973) og Blood for Dracula (1974), sem listamaðurinn Andy Warhol framleiddi og Paul Morrissey leikstýrði. Kier lék aðalhlutverkin í báðum myndum sem voru kómedískar og ögrandi uppfærslur á skrímslunum klassísku. Myndirnar gerðu Kier frægan og næstu tvo áratugi vann hann vítt og breitt um Evrópu. Hann starfaði náið með þýska leikstjóranum Rainer Werner Fassbinder að The Stationmaster’s Wife (1977), The Third Generation (1979) og Lili Marleen (1981). Drakúla og Frankenstein eru sígild verk. Um svipað leyti kynntist Kier danska leikstjóranum Lars von Trier og lék í hinni tilraunakenndu Epidemic (1987). Það reyndist upphafið að farsælu samstarfi og lék Kier í fjölda mynda leikstjórans, þar á meðal Europa (1991), Breaking the Waves (1996), Dancer in the Dark (2000), Dogville (2003) og Melancholia (2011). Kier kynntist leikstjóranum Gus Van Sant á kvikmyndahátíðinni í Berlín og hjálpaði Gus honum að fá atvinnuleyfi í Bandaríkjunum. Van Sant kynnti Bandaríkjamenn síðan fyrir Kier í dramanu My Own Private Idaho (1991) þar sem hann lék á móti River Phoenix og Keanu Reeves. Á tíunda áratugnum lék Kier í fjölda smáhlutverka í stórum Hollywood-myndum á borð við Ace Ventura: Pet Detective (1994). Armageddon (1998) og Blade (1998). Kier var iðinn við að leika allt fram á þetta ár og síðasta mynd hans var hin brasilíska The Secret Agent (2025) sem vann til fjölda verðlauna á Cannes.
Andlát Þýskaland Hollywood Bíó og sjónvarp Bandaríkin Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Beint flug til Portó Lífið samstarf Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Hvað veistu um... fugla? Lífið Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Lífið samstarf Fleiri fréttir Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Sjá meira