Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. nóvember 2025 21:46 Gleðin var við völd þegar Ármann tryggði sér sæti í Bónus deildinni í vor en liðið hefði mátt undirbúa sig betur að sögn Hallveigar Jónsdóttur. Ármann hefur aðeins unnið einn af fyrstu sjö leikjum tímabilsins í Bónus deild kvenna í körfubolta og liðið undirbýr sig alls ekki nógu vel fyrir leiki, að mati sérfræðings Körfuboltakvölds.
Eini sigur liðsins hingað til er gegn Hamar/Þór, sem er eina liðið sem hefur ekki unnið leik á tímabilinu. Slæmt gengi Ármenninga var tekið fyrir í síðasta þætti Körfuboltakvölds, eftir að nýliðarnir höfðu tapað 103-81 fyrir Stjörnunni. „Eitt spurningamerki sem ég set við þetta, er undirbúningur liðsins fyrir leiki“ sagði Hallveig Jónsdóttir. „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum. Það er eins og þær séu ekkert að fara yfir kerfin, ég set spurningamerki við undirbúninginn. Það þarf bara að skoða 2-3 kerfi og þú ert með þetta en mér finnst svo oft eins og þær hafi enga hugmynd um við hvaða lið þær eru að spila“ sagði Hallveig einnig og nefndi dæmi úr Stjörnuleiknum máli sínu til stuðnings. „Pressuvörnin hjá Stjörnunni er nú mjög þekkt dæmi, en það er eins og þær [hjá Ármanni] séu bara eitthvað hissa. Ekkert skipulag, átta sekúndur trekk í trekk, tapaðir boltar og það er bara hreinlega eins og þetta hafi komið þeim á óvart“ sagði Hallgerður en umræðuna alla má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Ármann hefur nú nægan tíma, heilt landsleikjahlé, til að undirbúa sig fyrir næsta leik gegn Njarðvík sem verður þann 22. nóvember. Klippa: Körfuboltakvöld - Hvað er í gangi hjá Ármanni?
Bónus-deild kvenna Ármann Körfuboltakvöld Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Körfubolti „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sjá meira