Svona var blaðamannafundur Arnars Sindri Sverrisson skrifar 5. nóvember 2025 12:32 Daníel Tristan Guðjohnsen og William Saliba tókust á í síðasta mánuði á Laugardalsvelli, þegar Ísland og Frakkland gerðu 2-2 jafntefli. vísir/Anton Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta, hefur ákveðið hvaða leikmenn verða í hópnum í síðustu tveimur leikjunum í undanriðlinum fyrir HM 2026, gegn Aserbaísjan og Úkraínu síðar í þessum mánuði. Bein útsending frá blaðamannafundi hans var á Vísi.
Leikurinn við Aserbaísjan verður í Bakú fimmtudaginn 13. nóvember klukkan 17 og leikurinn við Úkraínu fer fram í Varsjá sunnudaginn 16. nóvember, einnig klukkan 17. Arnar kynnir landsliðshópinn og svarar spurningum fjölmiðlamanna á fundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag. Upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan. Klippa: Blaðamannafundur Arnars Ísland er í harðri baráttu um að komast í HM-umspilið sem fram fer í mars. Þangað kemst liðið sem endar í 2. sæti en liðið sem vinnur riðilinn kemst beint á HM. Frakkland er efst í riðlinum með 10 stig, Úkraína er með 7, Ísland 4 og Aserbaísjan 1, þegar tvær umferðir eru eftir. Ísland er hins vegar með betri markatölu en Úkraína (+2 gegn +1) og er mikilvægt að hafa í huga að verði lið jöfn að stigum þá ræður heildarmarkatala lokastöðunni (ekki innbyrðis úrslit eins og í UEFA-keppnum). Þess vegna eru spennandi möguleikar í stöðunni fyrir mögulegan úrslitaleik Úkraínu og Íslands um 2. sæti þann 16. nóvember. Tveir möguleikar leiða hins vegar til þess að Ísland eigi enga von fyrir þann leik. Möguleikarnir fyrir leik Úkraínu og Íslands í lokaumferðinni: Ef Ísland vinnur Aserbaísjan og Úkraína tapar gegn Frakklandi: Þá verða Ísland og Úkraína jöfn að stigum en Ísland með betri markatölu. Jafntefli gegn Úkraínu myndi þá duga Íslandi til að ná 2. sæti. Ef Ísland vinnur Aserbaísjan og Frakkland og Úkraína gera jafntefli: Þá þyrfti Ísland að vinna Úkraínu til að ná 2. sæti. Ef Ísland vinnur Aserbaísjan og Úkraína vinnur Frakkland: Þá er enn möguleiki á efsta sæti fyrir Ísland en til þess þyrfti Frakkland svo að tapa í Aserbaísjan. Ísland þyrfti sigur, annað hvort til að ná 2. sæti af Úkraínu eða til að ná upp fyrir bæði Frakkland og Úkraínu. Ef Ísland gerir jafntefli við Aserbaísjan og Úkraína vinnur Frakkland: Þá yrðu möguleikar Íslands úr sögunni. Ef Ísland gerir jafntefli við Aserbaísjan og Úkraína vinnur ekki Frakkland: Þá þyrfti Ísland að vinna Úkraínu til að ná 2. sæti. Ef Ísland tapar fyrir Aserbaísjan og Úkraína tapar ekki gegn Frakklandi: Þá yrðu möguleikar Íslands úr sögunni. Ef Ísland tapar fyrir Aserbaísjan og Úkraína tapar gegn Frakklandi: Þá þarf Ísland sigur gegn Úkraínu til að ná 2. sæti. Aserar ættu fræðilega von um að blanda sér í baráttuna en eru með skelfilega markatölu. Það bíður svo vonandi betri tíma að velta því fyrir sér hvernig umspilið í mars mun líta út en þar þarf að slá út tvo andstæðinga til að komast á HM.
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Landsliðskona í Val Handbolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Sjá meira