Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2025 08:16 Alexis Mac Allister fagnar sigurmarki sínu fyrir Liverpool við hlið liðsfélaga síns Hugo Ekitike. Getty/Liverpool FC Liverpool og Arsenal unnu bæði góða sigra í Meistaradeildinni í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leikjunum þeirra inni á Vísi.
Liverpool vann 1-0 sigur á Real Madrid á Anfield þar sem Thibaut Courtois, markvörður spænska liðsins, var maður leiksins. Courtois varði hvað eftir annað frá leikmönnum Liverpool úr dauðafærum en Argentínumanninum Alexis Mac Allister tókst loksins að koma boltanum í markið þegar hann skallaði inn aukaspyrnu Dominik Szoboszlai á 61. mínútu. Það reyndist vera eina mark leiksins. Sextíu þúsund stuðningsmenn Liverpool púuðu á gömlu hetjuna sína Trent Alexander-Arnold þegar hann kom inn á völlinn og fögnuðu svo gríðarlega þegar leikurinn var flautaður af. Klippa: Sigurmark Liverpool á móti Real Madrid Arsenal vann öruggan 3-0 útisigur á Slavia Prag og hélt marki sínu hreinu áttunda leikinn í röð. Bukayo Saka kom Arsenal yfir af vítapunktinum eftir rúman hálftíma. Varsjáin greindi hendi hjá Lukas Provod og eftir stutta skoðun á skjánum benti aðaldómarinn á vítapunktinn. Í seinni hálfleik skoraði varaframherjinn Mikel Merino tvö mörk. Spánverjinn leysir af hólmi þá Viktor Gyökeres og Kai Havertz sem eru báðir meiddir. Arsenal er á toppi Meistaradeildarinnar með fjóra sigra úr fjórum leikjum og hefur ekki enn fengið á sig eitt einasta mark í keppninni. Þetta var einnig áttundi leikurinn í röð í öllum keppnum án þess að fá á sig mark, sem er jöfnun á félagsmeti frá 1903. Klippa: Sjáðu mörk Arsenal í Prag
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira