Góð tannheilsa er hluti af hamingju og heilsu Hvítt bros 5. nóvember 2025 10:21 „Við leggjum mikla áherslu á nákvæma greiningu bæði á tönnum og tannholdi, því það er grunnurinn að góðri meðferð,“ segir Þórður Birgisson, tannlæknir og eigandi tannlæknastofunnar Hvítt bros. Það eru ótrúlega spennandi og skemmtilegir tímar í tannlækningum í dag. Tækniframfarir hafa gjörbreytt starfseminni og gert tannlæknunum kleift að tryggja sjúklingum fallegt bros og vandræðalausar tennur í flestum tilvikum. „Starfið hefur orðið bæði fjölbreyttara og ánægjulegra,“ segir Þórður Birgisson, tannlæknir og eigandi tannlæknastofunnar Hvítt bros, sem starfar bæði í Ármúla 23 í Reykjavík og í Hveragerði. „
Fyllingarefnin sem við notum í dag endast lengur, blandast betur við náttúrulegan lit tanna og postulínið sem við vinnum með er bæði sterkara og fallegra en áður. Sársaukastjórnun hefur líka tekið miklum framförum og meðferðirnar sjálfar eru orðnar þægilegri og taka oft styttri tíma en áður,“ segir hann. Hlutverk tannlæknis er þó ekki aðeins að laga það sem er farið úrskeiðis heldur líka að tryggja að tannheilsa haldist góð til framtíðar. „Við leggjum mikla áherslu á nákvæma greiningu bæði á tönnum og tannholdi, því það er grunnurinn að góðri meðferð,“ útskýrir Þórður. „Markmiðið er að allir sjúklingar hafi fallegt bros, jafnvægi í biti og viti hvernig þeir geta beitt forvörnum til að viðhalda góðri tannheilsu alla ævi.“ Að hans sögn snúast allar góðar tannlækningar í raun um að skapa þannig aðstæður að sjúklingurinn þurfi ekki að fást við ný vandamál síðar. „Það er mikilvægt að kenna fólki rétt handtök, t.d. val á tannbursta, rétta notkun, hversu oft skal bursta og hvernig á að nota tannþráð. Við leggjum áherslu á að fólk noti mjúka bursta, helst „extra-soft“ því of harðir burstar geta valdið skemmdum á bæði tönnum og tannholdi.“ Fólki líður vel í stólnum enda er stofan björt og falleg. Eitt af því sem tannlæknar hjá Hvítt bros fylgjast sérstaklega með er hvort tannsteinn sé að safnast upp. „Stundum dugar ekki að pússa og bursta. Þá þurfum við að fjarlægja tannstein með sérstökum verkfærum,“ segir Þórður. „Ef hann safnast upp getur það valdið beintapi í kringum tennurnar, andremmu og jafnvel haft áhrif á heilsuna almennt.“ Rannsóknir síðustu ára benda til þess að tannholdssjúkdómar geti tengst öðrum sjúkdómum, svo sem hjarta- og æðasjúkdómum og jafnvel Alzheimer. „Það er ekki fullkomlega ljóst hvort um orsök eða samverkandi þætti sé að ræða, en þetta sýnir hversu nátengt munnheilsa og almenn heilsa eru,“ segir Þórður. Að lokum leggur hann áherslu á að góð tannheilsa sé ekki aðeins spurning um útlit, heldur einnig vellíðan og lífsgæði. „Góð tannheilsa og fallegt bros eru hluti af hamingju og heilsu í daglegu lífi. Það er ótrúlegt að sjá hvað fólk blómstrar þegar það getur brosað án þess að hugsa sig um. Það er ein besta umbunin í starfi tannlæknis.“ Nánari upplýsingar má finna á vef stofunnar og hægt er bóka tíma í síma eða á netinu. Hvítt bros er einnig á Instagram , Tik Tok og á Facebook.
Heilsa Tannheilsa Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Ískaldir IceGuys jólatónleikar Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Lífið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Fleiri fréttir Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Sjá meira