Fimm góðar um vonda færð, snjóstorma og ærandi innilokunarkennd Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. október 2025 18:00 Jack litli Torrance missir vitið og kennir eintómti vinnu þar um. Innilokaðir Íslendingar feta vonandi ekki sömu leið. Snjónum hefur kyngt niður í dag og stefndi lengi vel í að snjóstormur myndi ríða yfir í kvöld. Ekkert virðist ætla að verða af storminum en færðin er áfram illfær. Hvað er þá betra en að horfa á fólk sem innilokað vegna snjóstorms?
Vísir hefur tekið saman fimm góðar myndir sem tengjast snjóstormum og innilokunarkenndinni sem þeim fylgir. Sálfræðihryllingur fyrir þá hörðustu Stanley Kubrick náði að ergja hryllingsmeistarann Stephen King, trámatísera Shelley Duvall og búa til eina bestu hryllingsmynd allra tíma þegar hann gerði Shining (1980). Hér kemur Johnny. Rithöfundurinn Jack Torrance, leikinn af kynngimögnuðum Jack Nicholson, fær starf sem húsvörður Overlook-hótelsins í Klettafjöllum og tekur eiginkonu sína og son með sér. Dvölin fer ágætlega af stað en fljótlega nær einveran, innilokunarkenndin og drungalegt hótelið til hans. Jack fer á endanum yfir um og þarf fjölskylda hans að glíma við afleiðingarnar. Þeir sem eru illa haldnir af inniveru ættu kannski að sleppa þessari en aðrir geta vaðið óhræddir í málið. Lestarferð gegnum storminn Spennumyndin Snowpiercer (2013) er eftir suðurkóreska leikstjórann Bong Joon-Ho með Chris Evans, Tildu Swinton og Ed Harris í aðalhlutverkum. Árið 2014 ákvað mannkynið að bregðast við hamfarahlýnun með tilraun sem sprakk í andlitið á þeim og leiddi til annarrar ísaldar sem fór langt með að útrýma öllu lífi á jörðinni. Myndin gerist vissulega um borð í lest en innilokunarkenndin er ekki minni fyrir því. Íslenski leikarinn Tómas Lemarquis er líka í ágætlega stórri rullu í myndinni. Ég hélt að Snowpiercer væri á Netflix en svo er ekki, samnefnd sjónvarpssería sem byggir ofan á myndina, er það hins vegar. Kúrekar í klemmu Átta hatursfullir einstaklingar leita sér skjóls undan storminum í skála en þeir eru ekki allir þar sem þeir eru séðir. The Hateful Eight (2015) er spennuþrunginn vestri frá Quentin Tarantino með fjölda frábærra leikara, þar á meðal Kurt Russel, Samuel L. Jackson, Jennifer Jason Leigh og Tim Roth. Tarantino nær að fanga efasemdirnar og vantraustið sem tekur að grassera milli fólks þegar það er lokað inni saman. Vampírur í vetrarmyrkrinu Hryllingsmyndin 30 Days of Night (2007) gerist í einangraða smábænum Barrow í Alaska þar sem sólin rís ekki í þrjátíu daga yfir svartasta veturinn. Bæjarbúar eru að undirbúa sig undir myrkrið þegar vampírugengi sólgið í blóð birtist í bænum og nýtir sólarleysið til að herja á bæjarbúa. Sjúkur aðdáandi upplifir drauminn Stephen King er meistari í að búa til spennuþrungnar sögur og Misery er eitt hans besta verk. Leikstjórinn Robe Reiner aðlagaði bókina að skjánum árið 1990 og eru James Caan og Kathy Bates í aðalhlutverkum. Rithöfundurinn Paul Sheldon (Caan) lendir í bílslysi í Kolóradó og vaknar heima hjá trylltum aðdáanda, Annie (Bates). Myndin er góð blanda af sjúklegri spennu, hryllingi og smá húmor. Það er eitt að vera lokaður inni, það er annað að vera frelsissviptur í þokkabót.
Bíó og sjónvarp Hollywood Færð á vegum Veður Mest lesið Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Tónlist Kessler-tvíburarnir fengu aðstoð við að deyja Lífið Dönsku keppendurnir hafi hætt að abbast upp á hana eftir samtalið Lífið Tárvotir endurfundir sögulegra feðga Lífið Ragnheiður Guðfinna og Hjörtur að hittast Lífið Sérhönnuð krem frá O´Keeffe´s fyrir þurra og sprungna húð Lífið kynningar Von á þriðju stúlkunni: „Brotnaði um stund við fregnirnar“ Lífið Síðasta púslið væntanlegt í maí Lífið Stjörnulífið: Kvaddi kollvikin í Istanbúl Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Fleiri fréttir Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Vaktin: Sjónvarpsmenn verðlauna hver annan á ný Barnastjarna bráðkvödd Komu höndum yfir fæðingarvottorðið og ljóstruðu upp um fæðinguna Fimm góðar um vonda færð, snjóstorma og ærandi innilokunarkennd Vafðist tunga um tönn þegar Bond bar á góma Hótelstjóri Hótels Tindastóls er allur „Fallegasti drengur í heimi“ er látinn „Ég hef ekki trú á öðru en að við lifum þetta af“ Tilnefningar fyrir árið 2024 birtar Þau eru tilnefnd til Sjónvarpsverðlaunanna fyrir árið 2023 Sjónvarpsverðlaunin sækja innblástur í stillimyndina Inbetweeners snúa aftur Vesturport fær lóð í Gufunesi Minnist náins kollega og elskhuga „Hættið að senda mér gervigreindarmyndbönd af pabba“ Bak við tjöld Víkurinnar: Háskalegar aðstæður og hættulegur ferðamaður á hjara veraldar Saman á rauða dreglinum Rússar meina kvikmyndagerðarmanni að koma til Íslands Weerasethakul og Corbijn hlutu heiðursverðlaun RIFF Sjá meira