Hótelstjóri Hótels Tindastóls er allur Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. október 2025 12:09 Prunella Scales með samleikurum sínum í Fawlty Towers, þeim Connie Booth, John Cleese og Andrew Sachs árið 1979. Getty Leikkonan Prunella Scales, sem er þekktust fyrir að leika hótelstjórann Sybil Fawlty í bresku grínþáttunum Fawlty Towers, er látin, 93 ára að aldri. „
Elskuleg móðir okkar, Prunella Scales, lést friðsællega á heimili sínu í Lundúnum í gær, sögðu synir hennar, Samuel og Joseph, við PA News Agency í dag. Jafnframt tóku bræðurnir sérstaklega fram að móðir þeirra hefði horft á Fawlty Towers, eða Hótel Tindastól á íslensku, daginn áður en hún dó. „Þrátt fyrir að heilabilun hefði neytt hana í helgan stein eftir merkilegan 70 ára leiklistarferil þá bjó hún áfram heima hjá sér,“ sögðu bræðurnir. Prunella greindist með svokallaða æðaheilabilun (e. vascular dementia) árið 2013 en slík heilabilun er, samkvæmt orðasafni Háskóla Íslands, af völdum heilaæðasjúkdóms sem truflar blóðflæði til heilavefja. Ferill sem spannað heila mannsævi Prunella fæddist 22. júní 1932 í Sutton Abinger og flutti sjö ára með fjölskyldu sinni til Bucks Mills í Devon. Hún lærði í tvö ár við Old Vic Theater School og hóf leiklistarferil sinn árið 1952 þegar hún lék í framhaldsþáttaröðinni Pride and Prejudice. Aðalpersónurnar í Hóteli Tindastóli. Prunella lék í kjölfarið lék í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta en vakti fyrst almennilega athygli í grínþáttunum Marriage Lines sem voru sýndir í fimm þáttaraðir. Stærsta hlutverk Scales er þó vafalaust Sybil Fawlty í gamanþáttaröðinni Fawlty Towers sem var sýnt frá 1975 til 1979. Þrátt fyrir að hafa verið aðeins sýndir í stutta stund eru þeir einir vinsælustu grínþættir Bretlands. Hún lét þó ekki staðar numið þar og lék alveg fram til 2015 þegar hún gat ekki leikið meira vegna heilabilunarinnar. Prunella lætur eftir sig tvo syni, eina stjúpdóttur, sjö barnabörn og fjögur barnabarnabörn. Eiginmaður Prunellu, leikarinn Timothy Wes, lést í nóvember í fyrra, níutíu ára gamall.
Andlát Bíó og sjónvarp Bretland Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira