Rúmir 800 dagar síðan Man Utd var síðast fyrir ofan Liverpool Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. október 2025 09:29 Bryan Mbeumo skoraði fyrsta mark leiksins þegar Manchester United heimsótti Liverpool á dögunum. Michael Regan/Getty Images Eftir erfiða byrjun undir stjórn Ruben Amorim virðast Rauðu djöflarnir í Manchester United loksins vera að komast á gott skrið í ensku úrvalsdeildinni.
United átti afleitt síðasta tímabil þar sem liðið endaði í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Margir veltu fyrir sér hversu lengi nýráðinn Ruben Amorim fengi að hanga í starfi, en stjórn félagsins ákvað að halda tryggð við Portúgalann. Tímabilið sem nú er tiltölulega nýhafið fór heldur ekki vel af stað hjá liðinu, þrátt fyrir miklar styrkingar í sumarglugganum. Nú virðist liðið hins vegar vera að komast á beinu brautina og United hefur unnið þrjá deildarleiki í röð og fjóra af síðustu fimm. Hins vegar hefur hallað undan fæti hjá erkifjendum þeirra, Englandsmeisturum Liverpool. Bítlaborgarliðið varð Englandsmeistari á fyrsta tímabili Arne Slot við stjórnvölin og vann fyrstu fimm deildarleiki tímabilsins. Nú hefur Liverpool hins vegar tapað fjórum deildarleikjum í röð og margir stuðningsmenn liðsins klóra sér í höfðinu yfir genginu. Eftir 4-2 sigur United gegn Brighton í gær, og 3-2 tap Liverpool gegn Brentford, situr United í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 16 stig eftir níu leiki, einu stigi meira en Liverpool sem situr í sjötta sæti. Þetta er í fyrsta skipti sem Manchester United endar umferð í ensku úrvalsdeildinni í sæti fyrir ofan Liverpool síðan eftir fyrstu umferð tímabilsins 2023-2024. Í gær, þegar leikjum liðanna lauk, voru því 804 dagar frá því að United var síðast fyrir ofan Liverpool í lok umferðar í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Sjá meira