Um meint hlutleysi Kína í Úkraínustríðinu Erlingur Erlingsson skrifar 15. október 2025 13:00 Ég heyrði viðtal á Morgunvaktinni á mánudaginn um Kína og hugsaði hvað kínverski sendiherrann væri orðinn ægilega sleipur í íslensku. Þetta reyndast þó ekki vera hann, heldur stundakennari í kínverskum fræðum sem færði hlustendum sína greiningu á Kína og hélt því blákalt fram að „þeirra afstaða gagnvart stríðinu í Úkraínu er algerlega að vera hlutlaus”. Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Daniel Patrick Moynihan sagði víst einhvern tímann að „menn mega hafa eigin skoðanir, en þeir mega ekki hafa eigin staðreyndir”. Það á ágætlega við um þetta eflaust vel meinandi viðtal og sjónarmið viðmælandans, enda er engum vafa undirorpið að Kínverjar eru lykilbandamaður Rússa og hafa gert þeim kleift að reka ólöglegt árásarstríð sitt gegn Úkraínu svo lengi sem raun ber vitni. Því fer fjarri að Kínverjar séu hlutlausir. Rússland og Kína höfðu um árabil átt náið efnahagslegt og hernaðarlegt samstarf þegar ríkin tilkynntu fáum dögum fyrir innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 að þau hefðu gert með sér „ótakmarkað samstarf”. Í þeirri yfirlýsingu tók Kína undir ákall Rússa um að stöðva bæri stækkun Atlantshafsbandalagsins og studdi kröfur þeirra um öryggistryggingar af hálfu Vesturlanda, sérstaklega varðandi Úkraínu. Enginn þarf að velkjast í vafa um að þetta samkomulag var hluti af undirbúningi innrásarinnar og með því styrkti Pútin bakland sitt pólitískt, en líka eins og við höfum séð efnahagslega og hernaðarlega. Leiðtogarnir áréttuðu síðan þetta samband daginn sem tvö ár voru liðin frá innrásinni 24. janúar 2024 - tímasetning sem var engin tilviljun. Í kjölfar misheppnaðrar innrásar í Úkraínu hefur Rússland selt Kína og Indlandi olíu í miklu magni. Þetta hefur, umfram annað, gert þeim kleift að halda kostnaðarsömu stríði áfram þrátt fyrir slælegt gengi á vígvellinum. Kína flutti inn metmagn af rússneskri olíu í fyrra, alls 109 milljónir tonna, sem nam um fimmtungi af öllum orkuinnflutningi landsins. Rússland notar m.a. „Skuggaflota” sinn til þessara olíuflutninga til Kína. Heildarviðskipti Kína og Rússlands jukust um meira en þriðjung á árinu 2022 þegar Rússland var beitt viðskiptaþvingunum af Vesturlöndum í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Viðskipti ríkjanna náðu síðan nýjum hæðum 2023 þegar þau jukust um rúmlega 32% og námu alls 240 milljörðum bandaríkjadala (244 milljarðar á síðasta ári). Þessi viðskipti fela einnig í sér sölu á kínverskum íhlutum í rússnesk vopn og annan búnað tengdan stríðsrekstrinum gegn Úkraínu. Þannig beita Kínversk fyrirtæki blekkingum til þess að leyna sölu á íhlutum í dróna eða annan rússneskan vopnabúnað, auk véla og verkfæra fyrir rússneska vopnaframleiðslu sem er Rússum lífsnauðsynlegur en ekki strangt til tekið „vopnasala”. Leiðtogar Kína og Rússlands deila sýn á heimsmálin sem grundvallast á vilja til þess að viðhalda eigin einræðisstjórn og takmarka bandarísk áhrif sem hafa lengi verið þeim þyrnir í auga. Endurkjör Donald Trump hefur flækt þá myndi eilítið, en engu að síður er ljóst að Kína er áfram höfuðandstæðingur Bandaríkjanna og sú strategíska afstaða hefur lítið breyst frá því að Trump tók fyrst við embætti 2017. Viðleitni Trump til þess að kljúfa Rússland frá Kína sem hann virðist nú hafa gefið upp á bátinn var auk þess fyrirfram dæmd til þess að mistakast í ljósi þess hve náið samband Kína og Rússlands er orðið. Ekki má gleyma að Pútin og Xi hafa unnið náið saman að því að breyta alþjóðlegum leikreglum og arkitektúr alþjóðasamskipta sér í vil á undanförnum árum. Í því skyni hafa þeir hafa skapað og styrkt alþjóðlega ríkjahópai, s.s. BRICS og Shanghai Samstarfsstofnunina (SCO), sem mótvægi við G7, G20, og Sameinuðu Þjóðunum eftir atvikum. Kínverjar eru auk þess í óða önn að fylla í tómarúm innan kerfi SÞ sem skapast þar sem Bandaríki Trump draga sig til baka. Virðist þetta nú gerast í enn ríkari mæli en á fyrsta kjörtímabili Trump. Í viðtalinu talaði fræðimaðurinn einnig um að það sé gagnlegt fyrir Kínverja að landamæradeilur séu ekki leystar með valdi. Ef við setjum langa sögu Kínverska Alþýðulýðveldisins sem stangast á við þetta út fyrir sviga, hernað gegn Víetnam, landamæradeilur við alla nágranna, landvinninga með valdi á Suður-Kínahafi og ógnanir og innrásarundirbúning gegn Tævan, þá hefur málflutningur Kínverja ekki verið á þennan veg þegar kemur að hernaði Rússa gegn Úkraínu. Þar má fara allt aftur til upphafs hernarðarins 2014, þegar Rússar hernámu Krímskaga ásamt hluta Donetsk- og Lúhanskhéraða og héldu í framhaldi staliníska „þjóðaratkvæðagreiðslu á Krím” í mars 2015 um innlimun í Rússland. Tvær mikilvægar atkvæðagreiðslur Sameinuðu Þjóðanna fóru fram á þeim tíma. Daginn fyrir atkvæðagreiðsluna var kosið um ályktun þess efnia að niðurstöðum kosninganna skyldi hafnað vegna augljósra annmarka. Þar beitti Rússland neitunarvaldi, eftir að Kina hafði setið hjá eitt aðildarríkja ráðsins. Kínverski fastafulltrúinn vísaði í flókna þætti málsins í samtíma og sögulega og sagði að ályktunin myndi einungis flækja stöðuna. Þeir sem þekkja ekki vel til alþjóðlegrar diplómasíu sjá kannski ekki að hér var verið að veita Rússlandi skjól, en það var þó sannarlega raunin. Undir lok mánaðarins greiddi Allsherjarþing SÞ síðan atkvæði um ályktun sem mælti gegn því að ríki viðurkenndu breytta stöðu Krím í alþjóðakerfinu - þ.e.a.s. viðurkenningu á yfirráðum Rússlands. Ályktunin var samþykkt með 100 atkvæðum, Rússland og 10 önnur ríki greiddu atkvæði gegn henni og Kína sat hjá og tók ekki afstöðu gegn því að þarna væri landamærum breytt með valdi. Færa má rök fyrir því að utanríkisstefna Kína allt aftur til 1954 miði jafnan að því að erlend íhlutun sé ekki ásættanleg sbr. stefnu Kína um „fimm grundvallarsjónarmið friðsamlegrar sambúðar ríkja”. Það væri trúverðugt hvað Úkraínustríðið snertir ef Kína tæki ekki áþreifanlega afstöðu efnahagslega og hernaðarlega með Rússum samhliða því að sitja hjá í mikilvægum atkvæðagreiðslum og veita Rússum þannig diplómatískt skjól. En eins og fram kemur hér að ofan þá fer því fjarri, svo ekki sé talað um samskipti Kína við sín grannríki. Þegar öllu er á botninn hvolft er ljóst að ef ekki nyti við stuðnings Kínverja þá hefði Pútin fyrir löngu þurft að binda enda á árásarstríð sitt með einum eða öðrum hætti. Hann hefði þurft að láta af skipulegum pyntingum, loftárásum á borgaraleg skotmörk, barnsránum í þúsundatali, og hernaðaraðgerðum sem virðast ná flestum ef ekki öllum viðmiðum SÞ um þjóðarmorð. Það þarf mikið ímyndunarafl eða einbeittan brotavilja til að álykta að það geti talist hlutleysi af hálfu Kínverja. Höfundur er gestafræðimaður við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erlingur Erlingsson Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun