Eignaumsjón kaupir Rekstrarumsjón Árni Sæberg skrifar 10. október 2025 15:15 Framkvæmdastjórar Rekstrarumsjónar, Hrafnhildur Guðjónsdóttir og Helga Soffía Guðjónsdóttir, sem undirrituðu kaupsamkomulagið ásamt Daníel Árnasyni, framkvæmdastjóra Eignaumsjónar. Eignaumsjón Eignaumsjón hf. hefur fest kaup á Rekstrarumsjón ehf. og tekur við allri þjónustu við viðskiptavini félagsins í samræmi við gildandi þjónustusamninga um næstu mánaðamót. Samkomulag náðist um kaupin í framhaldi af viðræðum forsvarsmanna félaganna.
Í fréttatilkynningu þess efnis er haft eftir Helgu Soffíu Guðjónsdóttur og Hrafnhildi Guðjónsdóttur, framkvæmdastjórum Rekstrarumsjónar, að miklar breytingar hafi orðið á þjónustu við hús- og rekstrarfélög frá því að Rekstrarumsjón tók til starfa fyrir átta árum. „Reksturinn er orðinn flóknari og umfangsmeiri en í upphafi og við stóðum frammi fyrir því að tæknivæða og sérhæfa reksturinn enn frekar með verulegum tilkostnaði til að geta sinnt viðskiptavinum okkar. Það er góð lausn að okkar mati að sameinast Eignaumsjón, sem er öflugur aðili á þessu sviði og tryggja þannig að áfram verði vel hugsað um okkar viðskiptavini og þeirra hagsmuni.“ Þá er haft eftir Daníel Árnasyni, framkvæmdastjóra Eignaumsjónar, að starfsmenn félagsins hlakki til að fá nýja slíka til liðs við fyrirtækið og að þeir hlakki til að takast á við áskorunina sem felst í sameiningu félaganna. „Eignaumsjón hefur verið leiðandi í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fjöleignarhúsa í 25 ár. Við ætlum að halda áfram að þróa þá þjónustu til að mæta enn betur sívaxandi þörfum eigenda fasteigna með skilvirkum tæknilausnum og öruggri og ábyrgri þjónustu.“ Loks segir að starfsemi Rekstrarumsjónar flytjist formlega til Eignaumsjónar 1. nóvember 2025. Starfsfólk Rekstrarumsjónar komi þá til starfa á skrifstofu Eignaumsjónar, sem tryggi að viðskiptavinir Rekstrarumsjónar njóti eftir sem áður þjónustu starfsfólks sem þekki vel til þeirra mála og í samræmi við gildandi þjónustusamninga.
Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira