Skylda að klippa vel neglur í handbolta Sindri Sverrisson skrifar 18. september 2025 14:01 Handboltafólk verður að gæta þess að vera ekki með neglur sem valdið gætu skaða. Getty/Uwe Anspach Í endurbættum reglum Alþjóða handknattleikssambandsins er tekið sérstaklega fram að fingurneglur leikmanna verði að vera klipptar stutt.
Neglureglan er í raun viðbót við reglu 4:9 þar sem fjallað er um það að leikmenn verði að klæðast íþróttaskóm og megi ekki vera með neinn búnað sem ógnað geti öryggi mótherja, eins og til að mynda hálsmen, eyrnalokka, úr eða annað. Núna er svo sérstaklega tekið fram að ekki megi vera með neina hluti sem valdið geti skrámum og að neglur verði að vera klipptar stutt. Danski ríkismiðillinn DR fjallar um þetta og hefur eftir Jørn Møller Nielsen, dómaraeftirlitsmanni og reglutúlk hjá danska handknattleikssambandinu, að nýja reglan sé ekki til komin vegna þess að um sérstakt vandamál hafi verið að ræða. „Það er bara aðeins búið að útvíkka reglurnar um það sem hefur alltaf verið bannað,“ sagði Nielsen. En hversu stuttar þurfa neglurnar að vera? „Þær þurfa bara að vera almennilega klipptar. Bara þannig að þær fari ekki fram fyrir fingurgómana,“ sagði Nielsen. Hann segir einnig ljóst að dómarar mæti ekki með málband á leiki og kanni neglurnar hjá öllum leikmönnum: „Ég held að við förum nú ekki að raða leikmönnum upp í röð með hendur fram til að mæla neglurnar. Þetta mun ekki breyta neinu varðandi framkvæmd leikja,“ sagði Nielsen.
Danski handboltinn Handbolti Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira