Konráðs-bækur Arnaldar á leið á skjáinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. september 2025 11:19 Arnaldur Indriðason skrifar undir samning við Andra Ómarsson, forstjóra og yfirframleiðanda Glassriver, um aðlögun Konráðs-bókanna. Framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur keypt réttinn að bókaseríunni um rannsóknarlögreglumanninn Konráð eftir Arnald Indriðason og hyggst aðlaga hana að sjónvarpi.
Bandaríski fréttamiðillinn Variety greindi frá fregnunum í gær. Um er að ræða fyrstu aðlögunin á verki Arnaldar að sjónvarpsþáttaforminu en áður hafa kvikmyndirnar Mýrin (2006) og Napóleonsskjölin (2023) verið gerðar upp úr bókum hans. Ekki kemur fram hvaða bók verður til grundvallar en Arnaldur hefur skrifað sjö bækur um Konráð: Myrkrið veit, Stúlkan hjá brúnni, Tregasteinn, Þagnarmúr, Kyrrþeyr og Sæluríkið. Konráð er rannsóknarlögreglumaður sem er sestur í helgan stein en er þjakaður af fortíðinni og heldur áfram að rannsaka óupplýst mál. Samkvæmt tilkynningu frá Glassriver gerist þáttaröðin í Reykjavík og fjallar um missi, yfirbót og áhrif fortíðarinnar á Konráð. Sennilega þarf ekki að minna lesendur á vinsældir Arnaldar en hann hefur verið einn langvinsælasti rithöfundur Íslands síðastliðinn tuttugu ár, hefur verið þýddur á tugi tungumála um allan heim og selst í milljónatali. Serían bætist við fleiri þáttaraðir Glassriver sem eru á leiðinni, spennuseríuna Manifesto sem er skrifuð af Urði Egilsdóttur og glæpaseríu sem byggir á Reykjavík Noir-þríleik Lilju Sigurðardóttur.
Bókmenntir Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira