Slá hvern annan utan undir fyrir hvern leik á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2025 10:32 Finnarnir fara aðrar leiðir að því að koma sér í gírinn fyrir leik á EM. Aðalmaðurinn í því er Jacob Grandison sem sést hér fyrir miðju. FIBA.Basketball Það hefur verið gaman hjá finnska körfuboltalandliðsinu á Evrópumótinu í körfubolta til þessa en þeir fara aðeins öðruvísi leiðir til að koma sér í gírinn.
Finnar eru á heimavelli í Tampere og eru búnir að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum eftir þrjá sigra í fyrstu fjórum leikjum sínum. Það hefur verið frábær stemmning á leikjunum og Finnarnir eru með mjög skemmtilegt lið. Finnska liðið vann þrjá fyrstu leiki sína á móti Svíum, Bretum og Svartfellingum en urðu síðan að sætta sig við naumt tap á móti öflugum Litháum í leik fjögur. Kannski voru leikmenn liðsins eitthvað aðeins of æstir í þeim leik eftir afar sérstakan undirbúning rétt áður en þeir hlupu inn í salinn. Myndband af finnsku leikmönnunum fór nefnilega á flug á netmiðlum. Þar sést þeir slá hvern annan utan undir rétt fyrir leikinn. Reyndar var það finnski leikmaðurinn Jacob Grandison sem gekk þar á milli manna og sló þá utan undir og þeir slógu hann allir til baka. Grandison fékk því tólf kinnhesta en allir liðsfélagar hans bara einn. Grandison er því án efa upphafsmaðurinn af þessu því enginn annar myndi annars vilja ganga í gegnum svona stanslausa skelli á andlitið sitt. Grandison er 27 ára og spilaði síðast með PAOK í Grikklandi. View this post on Instagram A post shared by Bleacher Report (@bleacherreport)
EM 2025 í körfubolta Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira