Þegar átján ára Doncic lék á Hlyn Valur Páll Eiríksson skrifar 2. september 2025 09:02 Doncic fer framhjá Ægi Þór Steinarssyni á EM 2017 í Helsinki. Norbert Barczyk/Press Focus/MB Media/Getty Images Luka Doncic, leikmaður Los Angeles Lakers í NBA-deildinni, mun í annað sinn mæta Íslandi á stórmóti er Slóvenía tekst á við strákana okkar í keppnishöllinni í Katowice í Póllandi á EM í körfubolta í dag. Hann sýndi styrk sinn sem ungur pjakkur fyrir átta árum síðan.
Ísland tapaði 102-75 fyrir Slóveníu í Helsinki á EM árið 2017 þar sem Slóvenar voru á meðal bestu landsliða heims. Þeir raunar enduðu á að verða Evrópumeistarar á því móti. Þá var Doncic, ungur leikmaður Real Madrid á Spáni, að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu á stórmóti og fékk stórt tækifæri er hann spilaði 26 mínútur gegn Íslandi. Hann skoraði 13 stig í leiknum, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Eitt atvik vakti sérstaka athygli, þegar Doncic fíflaði Hlyn Bæringsson í íslensku vörninni og þrykkti niður þriggja stiga körfu. Atvikið má sjá í spilaranum sem fylgir. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Doncic hefur verið einn allra besti leikmaður heims. Ári eftir leikinn við Ísland varð hann EuroLeague meistari og valinn besti leikmaður keppninnar. Í kjölfarið fór hann í nýliðaval NBA-deildarinnar og var þar nýliði ársins. Hann hefur verið stórkostlegur með Dallas Mavericks og var stigahæstur í NBA-deildinni árið 2024. Hann skipti svo til Los Angeles Lakers í ár. Fróðlegt verður að sjá strákana okkar takast á við Slóvena og þá sérlega Doncic sem hefur eðlilega dregið vagninn hjá liðinu á mótinu en gengið þó verið undir væntingum hingað til. Leikur Íslands og Slóveníu hefst klukkan 17:00 og verður lýst beint á Vísi.
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Körfubolti Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Sjá meira