Körfubolti

Erfitt að sofa og vera einn með eigin hugsunum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Kári Jónsson átti erfitt með svefn eins og flestir í íslenska liðinu. Mikill samgangur var á milli herbergja til að menn væru ekki einir með erfiðum hugsunum eftir ruglið sem gekk á í gærkvöld.
Kári Jónsson átti erfitt með svefn eins og flestir í íslenska liðinu. Mikill samgangur var á milli herbergja til að menn væru ekki einir með erfiðum hugsunum eftir ruglið sem gekk á í gærkvöld. Vísir/Hulda Margrét

Kári Jónsson átti erfitt með svefn líkt og flestir í íslenska landsliðinu eftir gríðarsvekkjandi tap fyrir Póllandi á EM karla í körfubolta í gær. Menn vildu síst vera einir með eigin hugsunum.

„Maður var svolítið lengi niður. Það var erfitt að ná ró. Við sátum inni á herbergjum aðeins að vera í félagsskap svo maður sé ekki með eigin pælingum í erfiðleikum. Maður loksins nær smá hvíld en maður þarf að ná meiri í dag svo,“ segir Kári og má gera ráð fyrir að drengirnir leggi sig eftir æfingu dagsins hér í Katowice í Póllandi.

Klippa: Svefnleysi eftir sturlunina

Dómarakonsert í fjórða leikhluta leiks gærkvöldsins eftir að Ísland hafði komist yfir á sér vart annan líka. Hjálparleysi greip um sig hjá drengjunum sem gátu ekki annað en fylgt vafasömum fyrirmælum dómarateymisins.

„Nei. Þetta er sérstök tilfinning. Maður veit ekki hvernig maður á að bregðast við. Partur af manni leið vel með leikinn. Maður var stoltur og við spilum það vel og komum til baka til að setja okkur í þá stöðu sem við vorum í. En á sama tíma töpum við því og maður er leiður og fúll. Þetta er blanda af tilfinningum sem er erfitt að útskýra,“ segir Kári.

Menn hafa nú sofið á þessu og reyna að huga að leik morgundagsins, við Slóveníu.

„Það er alveg eðlilegt að það svíði en ég held samt að við séum þéttir og góðir. Við förum á æfingu á eftir og þá verður fullur fókus á Slóveníu. Við fáum fleiri tækifæri til að gera betur og bæta upp fyrir þetta. Þetta mun ekki sitja í okkur þannig séð, það er áfram gakk,“ segir Kári.

Í liði Slóveníu er Luka Doncic, leikmaður Los Angeles Lakers, og einn besti körfuboltamaður heims. Slóvenum hefur ekki gengið frábærlega á mótinu til þessa en Doncic sýnt mátt sinn og megin. Eðlilega hlakkar menn til að takast á við einn þann allra besta.

„Það verður helvíti skemmtilegt. Það verður mjög gaman að fá að kljást við hann og finna leiðir til að hægja á þessu og gera þetta erfitt fyrir hann. Það verður virkilega skemmtilegt,“ segir Kári.

Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir

Doncic og félagar í brasi

Slóvenar eru án sigurs á Evrópumótinu í körfubolta eftir 103-95 tap gegn Frökkum í dag.

„Eins og að dómararnir hefðu veðjað á þennan leik“

„Það er alltaf ömurlegt þegar leikir ráðast á einhverju svona bulli,“ sagði körfuboltaþjálfarinn Benedikt Guðmundsson þegar dómararnir fengu að finna fyrir því í umræðum eftir tap Íslands gegn Póllandi á EM í körfubolta í gær.

„Hjartað rifið úr okkur“

Craig Pedersen, þjálfari íslenska landsliðsins, var ómyrkur í máli eftir leik og vandaði dómurum leiksins ekki kveðjunnar.

„Bíður í átta ár eftir svona móti og þetta eru vinnubrögðin“

Landsliðsfyrirliðinn, Ægir Þór Steinarsson, var eðlilega súr í leikslok þegar náð var á hann á viðtalssvæðinu í Katowice. Ísland var aftur grátlega nálægt því að sækja sigur en fengu ekki tækifæri til þess sökum nokkurra vafasamra dóma í lok leiksins gegn Póllandi sem tapaðist 84-75.

„Vont er þeirra ranglæti. Verra er þeirra réttlæti“

Ólafur Stefánsson, einn besti handboltamaður Íslands frá upphafi, hvetur hvern einasta íþróttamann hér á landi til að nota frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í körfubolta sem innblástur til að leggja meira á sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×