Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2025 12:47 Katharina Kleinfeldt búin að átta sig á mistökunum og biður Marco Friedl afsökunar. Skjáskot/Sky Sport Það kom upp ansi vandræðalegt augnablik í beinni útsendingu Sky Sport í Þýskalandi í gær þegar spyrillinn Katharina Kleinfeldt virtist ekki þekkja fyrirliða Werder Bremen, Marco Friedl, í sjón.
Friedl og félagar hans í Werder höfðu mátt þola 4-1 skell gegn Eintracht Frankfurt en eins og fyrirliða sæmir var hann samt mættur í viðtal eftir leikinn. Kleinfeldt hóf hins vegar viðtalið á að segja við Friedl að hann hefði unnið 4-1 og spurði hvort hann hefði búist við svona sigri? Það sem virðist hafa ruglað Kleinfeldt er að Friedl var klæddur í Frankfurt-treyju. Hann hafði nefnilega skipst á treyjum við sinn fyrrverandi liðsfélaga , markvörðinn Michael Zetterer, sem var að skipta yfir til Frankfurt frá Werder Bremen. Það afsakar þó líklega ekki að þekkja ekki fyrirliðann í sjón og var Kleinfeldt algjörlega miður sín þegar Friedl svaraði henni að hann væri reyndar leikmaður Werder Bremen. 😳#SGE #SGESVW pic.twitter.com/LMvV9zLoRW— Murtaza Akbar (@Akbar_offiziell) August 23, 2025 „Þetta er mjög óþægilegt og angrar mig mikið,“ sagði Kleinfeldt þegar hún svo tjáði sig um málið, og bætti við að hún hefði meira að segja rætt við Friedl fyrir leikinn og væri auðvitað fullmeðvituð um að hann væri leikmaður Werder Bremen. „Ég vona að Marco geti brosað að þessu eftir nokkra daga,“ sagði Kleinfeldt. Samkvæmt þýska miðlinum Bild var Friedl þó ekki skemmt, alla vega í fyrstu. „Ég hef aldrei lent í svona löguðu áður. Þetta var undarlegt og líka svolítið fáránlegt,“ hefur Bild eftir fyrirliðanum.
Þýski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira