Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Atli Ísleifsson skrifar 15. ágúst 2025 13:50 Ylströndin í Nauthólsvík á sólríkum sumardegi. Vísir/Vilhelm Ylströndin í Nauthólsvík fagnar 25 ára afmæli í ár og af því tilefni verðum því öllum boðið til veislu á ströndinni á morgun, laugardaginn 16. ágúst, með skemmtidagskrá fyrir öll.
Frá þessu segir á vef Reykjavíkurborgar þar sem segir að ylströndin hafi verið tekin í notkun á þjóðhátíðardaginn þann 17. júní árið 2000 og hafi meginmarkmið framkvæmdarinnar verið að útbúa fjölbreytt útivistarsvæði með áherslu á útiveru og siglingar, sól- og sjóböð. „Settir voru upp voldugir sjóvarnargarðar sem lokuðu af lón þar sem kaldur sjór og heitt vatn renna saman. Sanddæluskipið Sóley flutti gullinn skeljasand úr Faxaflóa inn fyrir garðana á Ylströndinni. Útbúin var búnings- og sturtuaðstaða fyrir baðgesti auk veitingasölu og grillaðstöðu. Fyrir framan búningsaðstöðu er löng setlaug með heitu vatni og eimbað. Í flæðarmálinu er svo uppstreymispottur til hitunar á lóninu yfir sumarmánuðina. Stærð strandarinnar og varnargarðsins eru tæpir 14 þúsund fermetrar að stærð.Reykjavíkurborg Stærð strandarinnar og varnargarðsins eru tæpir 14 þúsund fermetrar að stærð. Siglingaklúbbarnir Siglunes og Brokey eru með aðstöðu sína við Nauthólsvík og bjóða upp á fjölbreytt námskeið. Að meðaltali koma hátt í 530.000 gestir á hverju ári á ströndina. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi borgarstjóri, vígði Ylströndina formlega á þjóhátíðardaginn, með því að stinga sér til sunds ásamt hópi barna úr Sundfélagi Reykjavíkur og Eyjólfi Jónssyni heitnum sundkappa. Synt var yfir víkina, þó ekki frá Kópavogi, og að loknu sundi var slakað á í heita pottinum. Sjá umfjöllun í Morgunblaðinu. Á þeim 25 árum sem liðin eru hefur Ylströndin fest sig í sessi sem staður þar sem fólk nýtur heilsueflingar, samveru og náttúru við sjávarsíðuna. Sjósund, sólböð og samvera hafa gert ströndina að ómissandi hluta af borgarlífinu. Afmælisveisla og öll velkomin Í tilefni tímamótanna verður boðið til veislu á ströndinni í Nauthólsvík þann 16. ágúst næstkomandi frá klukkan 13:30 til 16:00. Dagskráin verður sem hér segir: 13:30 – 16:00 DJ Bjössi tryggir góða stemningu 14:00 – 16:00 Hoppukastalar fyrir yngstu kynslóðina verða á ströndinni 14:00 – 16:00 Tufti og tröllabarn heilsa upp á gesti 14:15 Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri býður gesti velkomna 14:30 Suzie fjölleikastelpa skemmtir gestum Gestum verður boðið upp á íspinna og Bæjarins beztu verða á svæðinu. Aðgangur ókeypis,“ segir í tilkynningunni.
Reykjavík Sjósund Tímamót Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira