Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. ágúst 2025 10:12 Taylor Swift fór á langt og vinsælt tónleikaferðalag í fyrra og hittífyrra. Eftir að hún hætti á því hefur hún greinilega verið að vinna að nýrri plötu. Buda Mendes/Getty Taylor Swift tilkynnti tólftu plötu sína, The Life of a Showgirl, eftir að hafa birt dularfulla niðurtalningu á heimasíðu sinni. Swift greindi frá plötunni í stiklu fyrir nýjasta hlaðvarpsþátt Travis og Jason Kelce sem birtist í dag.
Swift er þekkt fyrir útpælda og pródúseraða tónlistarútgáfu sína og fóru aðdáendur tónlistarkonunnar því strax að velta fyrir sér að hún myndi tilkynna eitthvað stórt klukkan 12:12 tólfta þessa mánaðar þegar niðurtalningin rynni út. Og þeir höfðu rétt fyrir sér. Taylor tilkynnti þá að hún myndi mæta sem gestur í hlaðvarpið New Heights , sem kærasti hennar, Travis Kelce, heldur úti með bróður sínum, Jason Kelce. Í stiklu fyrir þáttinn, sem kemur síðar í dag, sést Swift draga blörraða vínylplötu upp úr tösku og tilkynna nafn hennar. Útlit plötunnar mun því væntanlega líka koma í ljós í dag. View this post on Instagram A post shared by New Heights (@newheightshow) Skömmu eftir að stiklan birtist fóru auglýsingar Swift að skjóta upp kollinum á auglýsingaskiltum um New York-borg og Nashville þar sem mátti sjá kóða sem leiddi fólk að lagalistanum „Og elskan, það er skemmtanabransinn fyrir þig“ sem inniheldur gömul lög tónlistarkonunnar. Aðdáendur eru þegar byrjaðir að rýna í lögin í leit að vísbendingum. Til dæmis eru sænsku pródusentarnir Max Martin og Shellback framleiðendur allra laganna á listanum sem fólk telur gefa til kynna að þeir muni spila stóra rullu í framleiðslu nýju plötunnar. Síðasta plata Swift var The Tortured Poets Department sem kom út í apríl 2024 og varð vinsælasta plata ársins. Tveimur tímum eftir útgáfu hennar stækkaði Swift plötuna í tvöfalda plötu sem hún titlaði The Anthology. Taylor hefur verið á rosalegu róli síðasta árið. Tónleikaferðalagið Eras Tour stóð yfir í tuttugu mánuði frá mars 2023 til desember 2024 og varð söluhæsta tónleikaferðalag sögunnar og eftir það keypti Swift aftur allan rétt á fyrstu plötum sínum.
Tónlist Bandaríkin Hollywood Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið „Hefði ekki getað gengið betur“ Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fleiri fréttir IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira