Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2025 13:45 Patrekur Orri Guðjónsson fagnar eftir leik. Hann bjó til fjórtán mörk fyrir liðið sitt. KF Álafoss Patrekur Orri Guðjónsson átti ótrúlegan leik í íslensku F-deildinni í fótbolta um helgina.
Patrekur Orri og félagar í Álafoss liðinu unnu þá 17-1 sigur á Reynir Hellissandi í A-riðli fimmtu deildar. Það er ekki oft sem leikir í íslensku F-deildinni komast í fréttirnar en frammistaða Patreks Orra gaf svo sannarlega ástæðu til þess. @kf_alafoss Knattspyrnufélagið Álafoss frá Mosfellsbæ segir frá afrekum leikmannsins síns á samfélagsmiðlum. Patrekur Orri átti nefnilega þátt í fjórtán af sautján mörkum liðsins en leikurinn fór fram á Malbikstöðinni að Varmá. Patrekur Orri skoraði átta mörk sjálfur en gaf líka sex stoðsendingar á félaga sína. Staðan var orðin 2-0 þegar Patrekur Orri skoraði fyrsta markið sitt á 19. mínútu en sextán mínútum síðar var hann kominn með fernu. Patrekur Orri skoraði síðan fimmta markið sitt á 71. mínútu, sjötta markið á 76. mínútu, sjöunda markið á 82. mínútu en áttunda og síðasta markið sitt skoraði hann síðan á 88. mínútu. Alexander Aron Davorsson skoraði fernu fyrir Álafoss og Davíð Ívarsson var með þrennu. Álafoss er efst í deildinni með níu sigra í ellefu leikjum og hefur skorað 50 mörk í þessum leikjum. Patrekur Orri er ekki markahæstur í deildinni þrátt fyrir að vera kominn með þrettán mörk því liðsfélagi hans Alexander Aron er enn einu maarki á undan honum. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnufélagið Álafoss (@kf_alafoss)
Fótbolti Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira