Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Kristján Már Unnarsson skrifar 24. júlí 2025 21:21 Svona myndu vindmyllurnar sjást þegar horft er yfir Gilsfjörð frá Vestfjarðavegi í Saurbæ skammt frá Gilsfjarðarbrú. EM Orka/Garpsdalsorka Vindorkuver á fjöllunum ofan Gilsfjarðar á Vestfjörðum fær grænt ljóst, samkvæmt tillögu sem ráðherra umhverfis- og orkumála hyggst leggja fram á Alþingi í haust. Þetta gæti orðið fyrsti stóri vindmyllugarðurinn á Íslandi sem rís á vegum einkaaðila.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá hvernig mannvirkin gætu litið út, samkvæmt kynningargögnum fyrirtæksins EM Orku. Við sögðum reyndar frá áformunum ofan Garpsdals árið 2018 þegar fulltrúar orkufyrirtækis í eigu Dana og Íra kynntu heimamönnum verkefnið. Vindorkugarðurinn yrði ofan á fimmhundruð metra háum fjöllum norðan Gilsfjarðar.Grafík/Sara Rut Fannarsdóttir Áformin gera núna ráð fyrir að 21 vindmylla rísi þarna á fjöllunum. Mest áberandi yrðu þær frá þjóðveginum yfir Þröskulda. Frá Ólafsdal rétt sæist í toppinn á þeim þótt þær verði 160 metra háar. Hver vindmylla gæti framleitt 4,2 megavött sem gæfi 88 megavatta heildarframleiðslugetu. Gagnvart vegfarendum yrðu vindmyllurnar mest áberandi frá þjóðveginum um Þröskulda.EM Orka/Garpsdalsorka Landsmenn hafa núna frest í samráðsgátt til 29. september næstkomandi til að lýsa skoðun sinni á þeim áformum ráðherrans Jóhanns Páls Jóhannssonar að setja vindmyllurnar í Garpsdal í nýtingarflokk rammaáætlunar. Úr Ólafsdal myndi rétt sjást í toppinn á vindmyllunum, samkvæmt kynningargögnum.EM Orka/Garpsdalsorka Ráðherrann segir mestar áhyggjur af því að farleiðir hafarna gætu í einhverjum tilvikum legið nálægt vindmyllunum. Hann segist leggja áherslu á að gætt verði varúðar í þeim efnum og hugað verði að mótvægisaðgerðum. Þessi virkjunarkostur hafi hins vegar ákveðna sérstöðu, að mati ráðherrans; verðmætagildi náttúru- og menningarminja á svæðinu sé lægra en annarra kosta og hann komi einna best út í mati á samfélagslegum áhrifum. Þá virðist meiri sátt ríkja um hann í nærsamfélaginu heldur en gildi um aðra kosti. Og það var einmitt það sem við heyrðum þegar við ræddum við bændurna í Garpsdal og þáverandi oddvita Reykhólasveitar haustið 2018. Þar fögnuðu menn því að fá fleiri störf í sveitina, umtalsverð fasteignagjöld og orkuöryggi. Hér má heyra hvað heimamenn sögðu fyrir sjö árum: Samkvæmt upplýsingum EM Orku er áætlað að fjárfestingin nemi nítján milljörðum króna, hún skapi tvöhundruð störf á byggingartíma og átján störf til langs tíma. Vindmyllurnar séðar frá Reykhólum í tuttugu kílómetra fjarlægð.EM Orka/Garpsdalsorka Ríkarður Örn Ragnarsson, verkefnastjóri EM Orku ehf., segir að þegar grænt ljós fæst á verkefnið gæti það komist á framkvæmdarstig eftir eitt ár. Reiknað sé með að framkvæmdir standi yfir í tvö ár.
Vindorka Reykhólahreppur Orkumál Orkuskipti Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir stefna í viðvarandi orkuskort í landinu. Umhverfis- og orkuráðherra boðar hins vegar að nýjum virkjanakostum verði bætt í nýtingarflokk á hverju ári. 8. júlí 2025 22:50 Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur lagt til að virkjunarkosturinn Garpsdalur í Reykhólahreppi verði settur í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Með því breytir hann tillögu verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaáætlunar og þetta er í fyrsta skipti sem ráðherra leggur til þá breytingu á tillögu verkefnisstjórnar að virkjunarkostur fari í nýtingarflokk. 7. júlí 2025 14:03 Vilja reisa 35 vindmyllur á fjöllum norðan Gilsfjarðar Vindorkuver með 35 vindmyllum gæti risið á fjöllum ofan Garpsdals í Gilsfirði, miðað við áform sem orkufyrirtæki í eigu Dana og Íra hefur kynnt heimamönnum. 1. október 2018 21:00 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir stefna í viðvarandi orkuskort í landinu. Umhverfis- og orkuráðherra boðar hins vegar að nýjum virkjanakostum verði bætt í nýtingarflokk á hverju ári. 8. júlí 2025 22:50
Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur lagt til að virkjunarkosturinn Garpsdalur í Reykhólahreppi verði settur í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Með því breytir hann tillögu verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaáætlunar og þetta er í fyrsta skipti sem ráðherra leggur til þá breytingu á tillögu verkefnisstjórnar að virkjunarkostur fari í nýtingarflokk. 7. júlí 2025 14:03
Vilja reisa 35 vindmyllur á fjöllum norðan Gilsfjarðar Vindorkuver með 35 vindmyllum gæti risið á fjöllum ofan Garpsdals í Gilsfirði, miðað við áform sem orkufyrirtæki í eigu Dana og Íra hefur kynnt heimamönnum. 1. október 2018 21:00