Streitulaust fjölskyldufrí í stað stress og álags Rakel Sveinsdóttir skrifar 25. júlí 2025 07:02 Rannsóknir sýna að sumarfrí fjölskyldunnar geta skapað álag fyrir bæði börn og fullorðna ef fólk til dæmis passar ekki upp á þreytu, jafnvægi í dagskrá og svo framvegis. Vísir/Getty Við elskum öll þennan tíma þar sem fjölskyldan er að fara í langþráð sumarfrí. Snýst mest um að hitta á bestu sólardagana. Eða elta sólina.
Hver svo sem áformin eru, ríkir tilhlökkunin oftast hjá bæði fullorðnum og börnum. Svo gaman að vera saman í sumarfríi! En samkvæmt rannsóknum, geta sumarfríin líka verið streituvaldar. Ekki síst fyrir börnin. Þetta þýðir að þessi frábæri tími þar sem ætlunin okkar er að slaka á, njóta og hlaða batteríin, geta haft gagnstæð áhrif og aukið álag í stað þess að draga úr því. Jú, rýnum aðeins í málin. Í grein á norska vísindavefnum Forskning.no, „Ferie: stress eller stressfri?“ segir að þegar rútína fellur niður eða raskast mikið, hlutverk breytast og stuðningskerfi hverfa (frí í leikskólum til dæmis), getur samverutíminn okkar sem á að vera svo ljúfur, orðið að algjöru stressi og jafnvel basli. Þar sem börn reyna á þolrif foreldra sinna og bæði foreldrar og börn verða hálf útkeyrð og þreytt. Þá geta alls kyns samskiptaörðugleikar komið upp. Jafnvel mál sem voru óleyst heiman frá fyrir frí og kynda undir togstreitu þegar í fríið er komið. Enn eitt vandamálið er síðan langvinn þreyta foreldranna sjálfra. Sem margir hverjir vinna baki brotnu til að komast í frí og treysta síðan á að geta hvílt sig í sumarfríinu. Málið er bara að fæst sumarfrí eru algjör afslöppun! Allt ofangreint er þó ekki yfirlýsing um að gott og afslappað sumarfrí sé borin von. Þvert á móti vitum við flest betur. Aðalmálið er að vera meðvituð um nokkur atriði. Eins og það til dæmis að vera ekki of þreytt þegar við förum í frí. Að finna jafnvægið í dagskrá sem byggir bæði upp á hvíld og afslöppun en í senn hæfilega dagskrá fyrir krakkana að geta treyst á. Svo sem sund, spil eða leiki. Þá er líka gott að hafa á bakvið eyrað hvort þreyta eða rask sé að hafa áhrif á samveruna þegar í fríið er komið og streita og álag er að gera vart við sig, til dæmis í samskiptum og reyna þá að vinna úr því sem fyrst.
Fjölskyldumál Tengdar fréttir Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Það getur alveg tekið á taugarnar að stilla endalaust til friðar á milli systkina í langþráðu fjölskyldufríi. 11. júlí 2025 07:03 Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku „Já þetta er raunveruleiki,“ segir Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur um alvarlegar afleiðingar skjánotkunar mjög ungra barna samkvæmt breskri rannsókn sem Vísir sagði frá síðastliðinn vetur. 15. júní 2025 08:03 Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ „Mamma var límið, við finnum svo mikið fyrir því núna, svona eftir á,“ segir Hjalti Einarsson þegar hann ræðir móðurmissinn. 8. júní 2025 08:00 Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Við tölum oft um bestu útgáfuna okkar. Þessa eftirsóttu útgáfu sem gerir okkur sterkari, hamingjusamari, kátari og svo framvegis. Best í samskiptum, best í að nýta styrkleikana okkar og svo framvegis og svo framvegis. 21. apríl 2025 08:01 Að hætta kvöld- og næturvafrinu Það kannast margir við að vakna dauðþreyttir alla morgna. Ekki vegna þess að þeir fóru svo seint upp í rúm kvöldinu áður. Nei; sá tími getur verið mjög skynsamlegur. 14. febrúar 2025 07:03 Mest lesið Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Lífið Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Lífið Vók Ofurmenni slaufað Gagnrýni „Við viljum alls ekki fá of marga“ Lífið „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Lífið Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Lífið Mannauðsstjórinn segir einnig upp Lífið Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina Lífið Fleiri fréttir Streitulaust fjölskyldufrí í stað stress og álags 50+: Grái fiðringurinn hjá kallinum ekkert endilega vesen Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Galdrasaga um fimm 50+ konur: „Við vorum fimm konur að fæða sama barnið“ 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku 50+: Að eiga draumalista getur komið okkur skemmtilega á óvart Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Sjá meira
Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Það getur alveg tekið á taugarnar að stilla endalaust til friðar á milli systkina í langþráðu fjölskyldufríi. 11. júlí 2025 07:03
Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku „Já þetta er raunveruleiki,“ segir Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur um alvarlegar afleiðingar skjánotkunar mjög ungra barna samkvæmt breskri rannsókn sem Vísir sagði frá síðastliðinn vetur. 15. júní 2025 08:03
Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ „Mamma var límið, við finnum svo mikið fyrir því núna, svona eftir á,“ segir Hjalti Einarsson þegar hann ræðir móðurmissinn. 8. júní 2025 08:00
Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Við tölum oft um bestu útgáfuna okkar. Þessa eftirsóttu útgáfu sem gerir okkur sterkari, hamingjusamari, kátari og svo framvegis. Best í samskiptum, best í að nýta styrkleikana okkar og svo framvegis og svo framvegis. 21. apríl 2025 08:01
Að hætta kvöld- og næturvafrinu Það kannast margir við að vakna dauðþreyttir alla morgna. Ekki vegna þess að þeir fóru svo seint upp í rúm kvöldinu áður. Nei; sá tími getur verið mjög skynsamlegur. 14. febrúar 2025 07:03