Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 24. júní 2025 17:01 Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að vekja athygli á heimsvísu fyrir leik sinn. Mynd/Camilla Camalini Íslenska spennuþáttaröðin Reykjavík Fusion heldur áfram að vekja athygli á alþjóðavettvangi eftir glæsilega heimsfrumsýningu á Canneseries-hátíðinni í apríl. Þættirnir hafa fengið lof fyrir frumlega nálgun og sterka frammistöðu aðalleikara.
Í tilkynningu frá íslenska kvikmyndaframleiðslufyrirtækinu ACT4 kemur fram að þáttaröðin hafi verið sýnd á fjölmörgum kvikmynda- og sjónvarpshátíðum um heim allan, þar á meðal Busan International Film Festival í Suður-Kóreu og SerienCamp í Þýskalandi undanfarið. Þá eru fleiri sýningar framundan í sumar og haust. Yfirframleiðendur þáttaraðarinnar hjá ACT4 eru Jónas Margeir Ingólfsson, Birkir Blær Ingólfsson og Milla Ósk Magnúsdóttir. Þáttaröðin er framleidd í samstarfi við Símann, Skot Productions, Arte France og Wild Sheep Content. Verkefnið hefur fengið mikla athygli fyrir kraftmikla frásögn sem sameinar glæpasögu, matarmenningu og dramatíska persónusköpun. Reykjavik Fusion er leikstýrt af Samúel Bjarka Péturssyni og Gunnari Páli Ólafssyni – sem hafa hlotið lof fyrir eftirminnilegar auglýsingar fyrir vörumerki á borð við Mercedes-Benz, McDonald’s og Disney en þetta er í fyrsta skipti sem þeir takast á við leikið sjónvarpsefni. Tvær stórstjörnur í eina sæng Meðal þeirra eru leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir, sem leika saman í fyrsta sinn á skjánum. „Það er búið að vera mjög gaman að sjá hvað það er mikill áhugi á þáttaröðinni erlendis,” segir Ólafur Darri Ólafsson aðalleikari og yfirframleiðandi þáttanna. „Það eru fjölmargir blaðamenn búnir að sjá fyrstu tvo þættina og maður hefur fundið fyrir mjög jákvæðum viðbrögðum. Við hjá ACT4 erum mjög stolt af þessari fyrstu þáttaröð okkar sem við höfum lagt líf og sál í að gera sem best úr garði. Og Samúel og Gunnar hafa svo sannarlega staðið undir þeim væntingum sem við gerðum til þeirra og skilað okkur frábæru verki.” Ólafur Darri og Hera HilmarsdóttirMynd/Studio Vigerie Verkefnið hefur fengið mikla athygli fyrir kraftmikla frásögn sem sameinar glæpasögu, matarmenningu og dramatíska persónusköpun. Frá frumsýningunni í Cannes hefur teymi þáttanna ferðast víða með sýningar og sérstaka viðburði tengda þáttunum, þar sem myndir frá rauða dreglinum, Q&A-viðburðum og spjalli við áhorfendur hafa fangað áhuga fjölmiðla og áhorfenda. Meðfylgjandi eru myndir frá viðburðum undanfarnar vikur og mánuði Frá vinsti: Gunnar Páll Ólafsson, Hörður Rúnarsson, Ólafur Darri Ólafsson, Hera Hilmisdóttir, Samúel Bjarki PéturssonMynd/Camilla Camalini Mynd/Camille Fermon Mynd/OlivierVigerie Mynd/OlivierVigerie Mynd/Jenrick Mielke Mynd/Jenrick Mielke Mynd/JHKLINGEL HÖFER Mynd/JHKLINGEL HÖFER Mynd/JHKLINGEL HÖFER
Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Fleiri fréttir Auglýsa eftir innsendingum til íslensku sjónvarpsverðlaunanna Nýr Rambo fundinn Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira