Nú liggja fyrir niðurstöður árshlutauppgjörs fyrsta fjórðungs 2025 hjá félögum á aðallista Kauphallarinnar. Er um að ræða 24 af 28 félögum á listanum, en tvö þeirra hafa annað fjárhagsár og tvö önnur birtu ekki fullnægjandi upplýsingar til að unnt væri að gera samanburð við afkomu fyrsta ársfjórðungs 2024.
Þá liggja einnig fyrir niðurstöður þjóðhagsreiknings fyrir fyrsta ársfjórðung 2025. Þannig jókst verg landsframleiðsla (VLF) á milli fyrsta ársfjórðungs 2024 og 2025 að nafnvirði um 9,5% og að raunvirði um 2,6%, en verðlag hækkaði um 6,8% á milli fjórðunganna. Meginvextir (eða stýrivextir) Seðlabanka Íslands lækkuðu aftur á móti og voru að meðaltali 9,3% á fyrsta ársfjórðungi 2024, en 8,2% á fyrsta ársfjórðungi 2025.
Við greiningu á arðsemi flokkum við félögin fyrst í tvo geira, þ.e. annars vegar í fjármála- og vátryggingafyrirtæki (5) og hins vegar í atvinnufyrirtæki (19). Því næst skiptum við fyrirtækjum í þessum geirum í eftirfarandi undirflokka, sem hafa a.m.k. þrjú félög í hverjum, þ.e. viðskiptabanka (3), félög í fasteignaviðskiptum (3), fjarskiptum (3), flutningum (3) og sjávarútvegi (3). Eftir standa þannig atvinnufyrirtæki í annarri starfsemi (7).

Afkoma félaga á aðallista
Á fyrsta ársfjórðungi hvors árs skiluðu þessi 24 félög samanlagt tapi til hluthafa, eða sem nam 17,5 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025 í samanburði við 33,8 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024. Fyrsti fjórðungur hvers árs virðist alltaf sá versti hjá íslenskum fyrirtækjum. Heildarafkoma félaganna var þó jákvæð um 31,7 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, en neikvæð um 34,9 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024. Skýrist munurinn á heildarafkomu og hagnaði hluthafa á fyrsta ársfjórðungi 2025 aðallega af þýðingarmun, sem verður til vegna eignarhluta móðurfélags í dóttur- og hlutdeildarfélögum með annan framsetningargjaldmiðil. Var það aðallega hjá félögum með Bandaríkjadal sem framsetningargjaldmiðil, eins og meðal annars Alvotech og JBT-Marel.
Af félögunum 24 skiluðu ellefu tapi, en þrettán hagnaði fyrir hluthafa á fyrsta ársfjórðungi 2025. Til samanburðar skiluðu sjö félög tapi, en sautján hagnaði fyrir hluthafa á fyrsta ársfjórðungi 2024. Voru tvö félög með neikvætt eigið fé hluthafa í lok beggja fjórðunga.
Viðskiptabankar
Á fyrsta ársfjórðungi 2025 nam hagnaður hluthafa viðskiptabankanna, þ.e. Arion, Íslandsbanka og Kviku, samtals 13,7 ma.kr. í samanburði við 10,9 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, sem samsvarar 25,4% hækkun. Hagnaður á hvern hlut hækkaði um 28,5%, eða í 1,73 kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, úr 1,35 kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024.

Arðsemi eigin fjár hluthafa nam 10,9% á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 8,8% á fyrsta ársfjórðungi 2024. Var arðsemin þannig 2,8% hærri en meginvextir Seðlabanka á fyrsta ársfjórðungi 2025, en 0,5% lægri en meginvextir á fyrsta ársfjórðungi 2024. Allir viðskiptabankarnir skiluðu hagnaði á fyrstu ársfjórðungum 2025 og 2024.
Félög í fasteignaviðskiptum
Rekstrartekjur Eikar, Heima og Reita námu samtals 9,7 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 9,1 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og hækkuðu þannig um 7,0%. EBITDA félaganna (fyrir matsbreytingar) nam samtals 7,1 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 6,6 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og hækkaði því um 6,8%. Hlutfall EBITDA af rekstrartekjum hélst því nokkuð stöðugt á milli ára.

Samtals hagnaður hluthafa fasteingafélaganna þriggja nam 3,8 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 8,5 ma.kr. fyrsta ársfjórðungi 2024 , sem samsvarar lækkun um 54,8% á milli ára, en félögin skiluðu öll hagnaði á báðum ársfjórðungum. Rekja má þessa lækkun á hagnaði, sem nam 4,7 ma.kr., í samanburði við hækkun á EBITDA, sem nam 0,5 ma.kr., til matsbreytinga fjárfestingareigna. Matsbreytingar fjárfestingaeigna lækkuðu þannig á milli ára um 62,8%, eða í 4,2 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, úr 11,3 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024. Hagnaður fasteignafélaganna þriggja á hvern hlut nam 0,65 kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 1,47 kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og lækkaði þannig um 54,5%, eða um svipað hundraðshlutfall og hagnaður. Arðsemi eigin fjár hluthafa félaganna þriggja á ársgrundvelli var samtals 8,0% á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 20,0% á fyrsta ársfjórðungi 2024.
Félög í fjarskiptum
Rekstrartekjur þeirra þriggja félaga sem eru í fjarskiptum þ.e. Nova, Símans og Sýnar, námu samtals 15,5 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 15,0 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og hækkuðu þannig um 3,8% á milli ára. EBITDA félaganna nam samtals 3,2 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 3,4 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og lækkaði því um 8,3%. Eftir innleiðingu á IFRS 16 staðlinum hafa evrópsk fjarskiptafélög í auknum mæli birt EBITDA eftir leigutengda liði (EBITDA after Leases, eða EBITDAaL), þar sem dregin eru frá vaxtagjöld og afborganir leiguskuldbindinga. Segja má að þessi mælikvarði samsvari því EBITDA eins og það var reiknað fyrir innleiðingu á IFRS 16. Samtals EBITDAaL félaganna þriggja nam 2,5 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 2,8 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og lækkaði þannig um 11,2% á milli tímabila.

Fjarskiptafélögin skiluðu 365 m.kr. tapi á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 151 m.kr. í hagnað á fyrsta ársfjórðungi 2024. Tvö af þremur félögum skiluðu tapi á fyrsta ársfjórðungi 2025, en eitt félag á fyrsta ársfjórðungi 2024. Arðsemi eigin fjár var því neikvæð um 4,1%, en jákvæð um 1,6% á sama tímabili í fyrra. Hagnaður fjarskiptafélaganna á hvern hlut var neikvæður um 0,06 kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, en jákvæður um 0,02 kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024.
Félög í flutningum
Rekstrartekjur flutningsfyrirtækjanna þriggja, þ.e. Eimskips, Icelandair og Play, námu samtals 75,2 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 71,9 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og hækkuðu þannig um 4,7%. EBITDA flugfélaganna tveggja var neikvæð á báðum fjórðungum, en EBITDA Eimskips hækkaði um 7,7% á milli þeirra. Öll félögin nota erlenda framsetningargjaldmiðla í árs- og árshlutareikningum sínum.

Samtals nam tap hluthafa félaganna um 9,9 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, en tapið var um 11,8 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024. Var tap á rekstri allra félaganna á fyrsta ársfjórðungi 2025, en tap flugfélaganna lækkaði þó á milli ára. Hagnaður var á rekstri Eimskips á fyrsta ársfjórðungi 2024.
Félög í sjávarútvegi
Rekstrartekjur sjávarútvegsfélaganna þriggja, þ.e. Brims, Ísfélags og Síldarvinnslunnar, námu samtals 31,4 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 30,3 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og hækkuðu þannig um 3,4%. EBITDA félaganna nam samtals 6,3 ma.kr., í samanburði við 5,3 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, og hækkaði því um 19,0% á milli ára.

Hagnaður hluthafa félaganna þriggja var samtals 1,6 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 2,0 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, sem samsvarar 22,2% lækkun. Þó var mikill munur á hvorum fjórðungi á hagnaði til hluthafa og heildarafkomu. Þannig var heildarafkoma 4,0 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, eða 2,4 ma.kr. hærri en hagnaður hluthafa á fjórðungnum, en 469 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024, eða 1,6 ma.kr. lægri en hagnaður hluthafa á tímabilinu. Arðsemi eigin fjár miðað við hagnað hluthafa var 2,6% á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 3,5% á á fyrsta ársfjórðungi 2024. Hagnaður á hvern hlut nam að meðaltali 0,34 kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, í samanburði við 0,44 kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024 og lækkaði því um 22,4%, eða svipað hundraðshlutfall og samtals hagnaður hluthafa.
Höfundur er fyrrverandi forstjóri Bankasýslu ríkisins og hefur starfað á fjármálamarkaði í meira en þrjátíu ár, lengst af hjá alþjóðlega fjárfestingarbankanum Merrill Lynch.