Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk Jakob Bjarnar skrifar 9. júní 2025 10:02 Mótmæli fyrir utan ráðstefnu Bilderberg-hópsins 2013. Maðurinn vill mótmæla efnum í lofti sem hann er sannfærður um að greina megi í rákum eftir þotur. Oli Scarff/Getty Images) Sú samsæriskenning hefur breiðst ört út að hvítar slóðir sem sjást á himninum í kjölfar flugvéla séu ekki saklaus vatnsgufa heldur eiturefni sem vísvitandi er úðað yfir almenning í óljósum en óhugnanlegum tilgangi — allt frá hugsanastýringu til veðurstjórnunar.
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið kafa prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir ofan í uppruna og þróun þessarar kenningar um svonefnda chemtrails, þar sem því er haldið fram að stjórnvöld — eða óskilgreindir „þeir“ — standi að baki leynilegum efnaúðunum úr háloftum. Yfirvöld fikta við háloftin Samkvæmt kenningunni gæti um verið að ræða dreifingu örvera, nanóagna eða jafnvel lyfja sem virkjast með örbylgjum. Þetta hljómar eins og vísindaskáldsaga en kenningin varð ekki til í tómarúmi því til eru raunveruleg verkefni þar sem yfirvöld og vísindamenn hafa fiktað við háloftin, og gert það opinberlega. Þeirra á meðal er HAARP-stöðinni í Alaska þar sem tilraunir hafa verið gerðar með veðurstýringu. Tilraunir á borð við skýjasáningu hafa verið gerðar í löndum eins og Kína í þeim tilgangi að framkalla regn. Slíkar aðgerðir eru ekki leyndarmál — heldur opinberar veðurfræðilegar tilraunir. En að sögn sumra er sú staðreynd ein og sér næg til að grunsemdir vakni: Ef hægt er að breyta veðri, hvað fleira er þá mögulegt? Bandaríkjaher úðar efnum yfir eigin borgara Skuggavaldið vekur einnig athygli á öðrum tilraunum sem hafa átt sér stað með leynd, svo sem hernaðarverkefnum á borð við Agent Orange í Víetnam, Operation LAC og Project Popeye, þar sem Bandaríkjaher úðaði efnum í tilraunaskyni — og í sumum tilfellum gegn eigin borgurum. Í næsta þætti verður sú hlið málsins tekin fyrir ítarlega. Eiríkur og Hulda halda sínu striki og segja af samsæriskenningum sem greinilega enginn skortur er á.vísir/vilhelm Hvað chemtrails varðar liggja hins vegar engar staðfestar sannanir fyrir tilvist slíkra úðana. Engin trúverðug skjöl hafa lekið, enginn uppljóstrari hefur stigið fram, og engar mælingar hafa leitt í ljós hættuleg efni í þessum slóðum sem ekki samræmast þekktri eðlisfræði háloftanna. Vísindaleg skýring á fyrirbærinu er einföld og vel þekkt: Flugslóðar (contrails) myndast þegar heitt og rakt loft frá hreyflum flugvéla þéttist í ískristalla við snertingu við kalt loft í háloftunum. Næst þegar þú horfir upp í bláman og sérð hvítar rákir teygja sig þvert yfir himininn, er ekki víst að þær geymi dulinn tilgang — en þær gætu verið upphaf að áhugaverðri sögu. Skuggavaldið er komið í loftið — og það dreifir ekki eiturefnum, heldur spurningum. Þáttinn má finna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira