Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Sindri Sverrisson skrifar 17. maí 2025 15:52 Leikmenn Dortmund hafa ástæðu til að fagna vel og lengi í dag. Getty/Leon Kuegeler Eftir að hafa verið fyrir neðan efstu fjögur sætin í þýsku 1. deildinni í fótbolta nánast alla leiktíðina þá tókst Dortmund á síðustu stundu að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu í dag, í lokaumferð þýsku deildarinnar.
Það verða Dortmund og Frankfurt sem fylgja meisturum Bayern München og Leverkusen í Meistaradeildina á næstu leiktíð, eftir lokaumferðina í dag. Frankfurt vann 3-1 útisigur gegn Freiburg sem hefði með sigri getað skilið Frankfurt eftir í 5. sæti og komið sér í Meistaradeildina. Útlitið var reyndar gott fyrir Freiburg þegar Ritsu Doan kom liðinu yfir á 27. mínútu en rétt fyrir hálfleik náði Frankfurt að jafna, með marki frá Ansgar Knauff. Rasmus Kristensen og Ellyes Skhiri skoruðu svo tvö mörk á þriggja mínútna kafla eftir klukkutíma leik og tryggðu Frankfurt sigur. Freiburg hefði þó getað komist í Meistaradeildina ef að Dortmund hefði tapað gegn Holstein Kiel en það var aldrei inni í myndinni. Dortmund komst yfir með sjálfsmarki strax á þriðju mínútu og gestirnir frá Kiel misstu Carl Johansson af velli með rautt spjald skömmu síðar. Marcel Sabitzer og Felix Nmecha skoruðu svo í seinni hálfleiknum og tryggðu Dortmund sæti í Meistaradeildinni. Kiel og Bochum féllu niður í 2. deild en Heidenheim fer í umspil um að halda sér uppi.
Þýski boltinn Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Sjá meira