Innherji

Sam­keppnis­staða Al­vot­ech verði „enn sterk“ þótt verð á frum­lyfjum muni lækki

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman, forstjóri og aðaleigandi Alvotech sem hyggst fara á markað í Svíþjóð, segir að markmiðið sé að búa til „norrænt stórfyrirtæki“ sem verði leiðandi í líftæknilyfjaiðnaði. 
Róbert Wessman, forstjóri og aðaleigandi Alvotech sem hyggst fara á markað í Svíþjóð, segir að markmiðið sé að búa til „norrænt stórfyrirtæki“ sem verði leiðandi í líftæknilyfjaiðnaði.  Vísir/Vilhelm

Ef áform Trump um að knýja í gegn tugprósenta lækkun á verði lyfja vestanhafs mun raungerast ætti það að sama skapi að leiða til verðhækkana á frumlyfjum í Evrópu og öðrum löndum, að sögn forstjóra Alvotech, og styrkja þá samkeppnisstöðu félagsins enn frekar utan Bandaríkjanna. Hann telur að útspil Bandaríkjaforseta muni ekki hafa áhrif á boðaða skráningu Alvotech í Svíþjóð í næstu viku og vegna „mikils áhuga“ séu væntingar um að stórir norrænir fjárfestar muni bætast við hluthafahópinn eftir að félaginu verður fleytt á markað þar í landi.


Tengdar fréttir

„Brostnar væntingar“ fjár­festa en áhættu­stig Al­vot­ech sam­hliða lækkað mikið

Mikið verðfall á hlutabréfum Alvotech eftir uppfærða afkomuspá endurspeglaði brostnar væntingar fjárfesta, sem um leið losaði út talsvert af skuldsettum stöðum, en þrátt fyrir tímabundnar hraðahindranir undirstrika greinendur að félagið sé á allt öðrum stað en áður og efnahagsreikningurinn orðinn mun „heilbrigðari“. Ný og betri upplýsingagjöf er sögð geta leitt til „þroskaðri umræðu og væntinga“ um Alvotech en markaðsviðskipti Íslandsbanka nefna að ef félagið nær um 350 milljóna dala rekstrarhagnaði á næstu tveimur árum, nokkuð undir útgefinni áætlun, ætti það að skila sér í virkilega góðri ávöxtun.

Fjár­festar marg­földuðu skort­stöður í bréfum Al­vot­ech í að­draganda upp­gjörs

Á fáeinum mánuðum jókst umfang skortsölu með hlutabréf í Alvotech á markaði í Bandaríkjunum um liðlega sjöfalt og var í hæstu hæðum þegar félagið birti ársuppgjör sitt og uppfærða afkomuspá, sem var undir væntingum fjárfesta, í lok mars. Veðmál þeirra fjárfesta, sem var ágætlega stórt í hlutfalli við frjálst flot á bréfunum vestanhafs, hefur gefist vel en hlutabréfaverð Alvotech hefur lækkað um nærri þriðjung frá þeim tíma.

Al­vot­ech kaupir þróunar­starf­semi Xbra­ne og stefnir að skráningu í Svíþjóð

Alvotech hefur haslað sér völl innan sænska líftæknigeirans, sem er einn sá stærsti á heimsvísu, með kaupum á allri þróunarstarfsemi Xbrane Biopharma ásamt fyrirhugaðri hliðstæðu félagsins fyrir nærri fjóra milljarða. Þá segist Alvotech, sem er fyrir skráð á markað á Íslandi og í Bandaríkjunum, ætla að skoða þann möguleika að skrá félagið í kauphöllina í Stokkhólmi innan fárra ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×