Menning

Ís­lendingar vekja at­hygli í menningar­lífi Kaup­manna­hafnar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Elísabet Olka og Högna Heiðbjört opnuðu sýningu í Kaupmannahöfn með stæl.
Elísabet Olka og Högna Heiðbjört opnuðu sýningu í Kaupmannahöfn með stæl. Sigurrós Eiðsdóttir

Íslensku myndlistarkonurnar Elísabet Olka og Högna Heiðbjört Jónsdóttir opnuðu sýninguna Montage með stæl í Kaupmannahöfn í byrjun apríl. Íslenska þemað var tekið alla leið þar sem sýningin fór fram í galleríinu Wild Horses sem er rekið af myndlistarkonunni og hönnuðinum Sigurrós Eiðsdóttur.

Margt var um manninn á opnuninni og meðal gesta mátti sjá fjölbreyttan hóp listunnenda, skapandi einstaklinga og fólki úr menningar-og listalífi borgarinnar. Sýningin stendur til 7. maí næstkomandi. 

Heimspekileg listsköpun

Elísabet og Högna eru báðar búsettar í Kaupmannahöfn og njóta þess að lifa og hrærast í listasenunni þar en halda á sama tíma góðri tengingu við Ísland. Elísabet Olka er útskrifuð frá Listaháskóla Íslands og nam framhaldsnám Billedkunst og í Kaupmannahöfn. Högna lærði myndlist við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam og hlaut BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands.

Í verkum Elísabetar á sýningunni rannsakar hún meðal annars tengsl hluta og hugmynda, hvernig dauðir hlutir geta í raun borið með sér tilfinningar og minningar. Innblásturinn kemur meðal annars frá franska heimspekingnum Gaston Bachelard, sem fjallaði um hvernig rými, tilfinningar og ímyndunarafl móta skynjun okkar á heiminum.

Verk eftir Elísabetu Olku. Sigurrós Eiðsdóttir

„Mér finnst svo áhugavert að hlutir geta borið með sér tilfinningalega og huglæga merkingu, hvernig sumir hlutir geta orðið að geymslustað minninga,“ segir Elísabet.

„Ég hugsa keramik myndirnar mínar á sýningunni sem ljóðræna frásögn í brotum, þar sem hver flís geymir sína sögu en verður svo hluti af stærra samhengi þegar þeim er svo raðað í eina mynd. Þannig skapast nýjar tengingar og nýjar merkingar.

Mótífið á flísunum sýnir það sem er brothætt, bæði það huglæga sem við finnum innra með okkur, eins og tilfinningar og dagdraumar og það sem við getum séð og snert, eins og hlutir í umhverfinu.“

Stöðugt að upplifa liti

Í verkum Högnu púslar hún ýmist saman málningu og litaprufum til að mynda málverk. Hún nálgast málverkin með innsæi en einnig kerfisbundnum aðferðum. Litaval er miðdepill verkanna og dregur hún innblástur frá veraldlegum hlutum úr umhverfi sínu.

Verk eftir Högnu Heiðbjörtu.Sigurrós Eiðsdóttir

„Ég er alltaf að upplifa liti í umhverfi mínu, ég fylgist með þeim breytast með árstíðunum til dæmis. Ég tek fullt af ljósmyndum af hlutum sem er einkennandi á litin og svo púsla ég þessum litum saman í málverk. Ég upplifi þetta ferli eins og ég sé einhvers konar augndropateljari, að taka litaprufur úr umhverfinu mínu og sameina litina svo á strigann.“

Wild horses Gallery þar sem sýningin stendur var stofnað haustið 2023 af Sigurrós Eiðsdóttur og hefur á skömmum tíma öðlast orðspor sem spennandi og nýstárlegt gallerí í Kaupmannahöfn. 

Galleríið leggur áherslu á framúrskarandi samtímalist með fjölbreyttri og lifandi sýningarflóru, þar sem rýmið sjálft gegnir lykilhlutverki í upplifun gesta.

Hjónin Sigurrós og Dane reka Wild Horses Gallery og kaffihús.Aðsend

Sigurrós lauk BA námi í myndlist frá Goldsmiths University of London, og rekur auk gallerísins tískumerkið SÓSA studio, þar sem hún sameinar list, hönnun og handverk á einstakan hátt. Við hlið gallerísins er Wild Horses kaffihús, sem hún rekur ásamt eiginmanni sínum. Það var tilnefnt sem kaffihús ársins í „Byens Bedste“ af Politiken árið 2023 og aftur árið 2024 af Berlingske.

Hér má sjá myndir frá opnuninni:

Stefanía Kristín Bjarnadóttir, Högna Heiðbjört og Sverrir Thordarson.Sigurrós Eiðsdóttir
Gunnhildur Ýrr Gunnarsdóttir hönnuður á spjalli.Sigurrós Eiðsdóttir
Ísidór Jökull Bjarnason tónlistarmaður og Pedro Faria Blanc.Sigurrós Eiðsdóttir
Elísabet Olka og Gísli Galdur tónlistarmaður.Sigurrós Eiðsdóttir
Snædís Björnsdóttir í góðum félagsskap.Sigurrós Eiðsdóttir
Sýningargestir á kaffihúsinu.Sigurrós Eiðsdóttir
Eyrún Björk leikkona lét sig ekki vanta.Sigurrós Eiðsdóttir
Líf og fjör á opnuninni!Sigurrós Eiðsdóttir
Listrænir gestir.Sigurrós Eiðsdóttir
Högna Heiðbjört listakona.Sigurrós Eiðsdóttir
Tumi Magnússon myndlistarmaður ásamt Elísabetu Olku að skoða verk.Sigurrós Eiðsdóttir
Elísabet Olka og Högna Heiðbjört voru í skýjunum með opnunina.Sigurrós Eiðsdóttir
Kristín Kristjáns, Elísabet Olka og Alistair Macintyre myndlistarmaður.Sigurrós Eiðsdóttir
Mikið fjör!Sigurrós Eiðsdóttir
Elísabet Olka töffari.Sigurrós Eiðsdóttir
Glæsilegar listakonur, Elísabet Olka og Högna Heiðbjört.Sigurrós Eiðsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.