Taylor sögð hóta Kanye lögsókn Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. apríl 2025 16:13 Kanye West og Taylor Swift grófu eitt sinn stríðsöxina en hún er komin á loft á ný eftir niðrandi ummæli rapparans. Vísir/Getty Taylor Swift er sögð hafa hótað Kanye West lögsókn eftir að rapparinn viðhafði klúr ummæli um söngkonuna og lýsti því yfir að hann vildi sofa hjá henni.
Erjur Swift og West ná langt aftur í tímann en lítið hefur farið fyrir þeim undanfarin ár. Nú virðist þó sem þær séu hafnar á ný og hafi harðnað til muna. Fyrr í vikunni skrifaði West færslu á X þar sem hann greindi frá þremur ástæðum fyrir því af hverju hann fékk aldrei að skemmta í hálfleikshléi Ofurskálarinnar. Það hefði verið eftir að hann sagði George Bush Bandaríkjaforseta vera sama um svart fólk, eftir að hann lenti í deilum við Swift og eftir að hann klæddist MAGA-hatti. Færslan vakti töluverð viðbrögð en West gekk enn lengra á fimtudag þegar hann birti færslur um það að hann vildi sofa hjá Swift og talaði með niðrandi hætti um sambönd hennar við Justin Bieber og Harry Styles. Færslunum var eytt skömmu síðar. Færsla West sem var svo eytt Rapparinn gengið of langt í þetta skiptið Guli miðillinn Daily Mail segist hafa heimildir fyrir því að lögfræðiteymi Taylor Swift hafi hótað rapparanum lögsókn með svokallaðri „cease and desist“-kröfu. „Í þetta skiptið hefur hann gengið of langt,“ hefur Daily Mail eftir heimildamanni sínum. „Fullyrðingar hans eru ekki bara rangar heldur ærumeiðandi. Þetta er ekki bara slúður. Þetta er kynferðisleg áreitni í garð konu þar sem hún er ófrægð og reynt er að skaða hana og feril hennar.“ Heimildamaður miðilsins segir Swift hafa fengið sig fullsadda af áreitni rapparans og því væri lögsókn eini möguleikinn. Swift hefði í gegnum tíðina forðast slíkar aðgerðir þrátt fyrir fjölda persónulegra árása í hennar en nýjustu fullyrðingar West væru síðasta hálmstráið. West hefur ekki brugðist opinberlega við hótun Swift um lögsókn en hann hefur í það minnsta eytt færslunum hvort sem það var af eigin ráði eða vegna utanaðkomandi þrýsings. Saga Swift og West Upphaf deilnanna milli West og Swift má rekja til VMA-verðlaunanna árið 2009 þegar West ruddist upp á svið í miðri sigurræðu Swift og sagði að Beyonce hefði átt að vinna þau. Rúmu ári síðar baðst rapparinn afsökunar og sagði Swift ekki hafa átt framkomuna skilið. Fimm árum seinna sást til þeirra knúsast á Grammy-verðlaunahátíðinni og í ágúst sama ár veitti Taylor Kanye heiðursverðlaun á VMA-verðlaunahátíðinni, sömu hátíð og hann truflaði sex árum fyrr. Kanye var þó fljótur að skemma samband þeirr aftur þegar hann gaf út plötuna Life of Pablo í febrúar 2016. Á laginu „Famous“ söng Kanye eftirfarandi línu: „Ég held að ég og Taylor gætum ennþá stundað samfarir, ég gerði þessa tík fræga.“ Teymið Swift birti í kjölfarið yfirlýsingu um að hún hefði ekki samþykkt textann né verið látin vita af honum. Kim Kardashian, þáverandi eiginkona West, hélt því fram í júní sama ár að Swift hefði víst verið meðvituð um textann og upptaka sannaði það. Kim birti síðan upptökuna á Snapchat seinna um sumarið. Swift sagði í kjölfarið að hún hefði ekki vitað af því að Kanye myndi kalla hana „tík“ í laginu og að hún hefði ekki áhuga á að taka þátt í sirkus þeirra.
Hollywood Bandaríkin Mál Kanye West Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Menningarsprautur í hvísluleik Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira