Rannsaka hatursorðræðu í garð Banda Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. mars 2025 23:15 Barbra Banda í leik Orlando Pride og Gotham FC um liðna helgi. Rich Graessle/IGetty Images NWSL-deildin í Bandaríkjunum rannsakar nú hatursorðræðu eins áhorfanda í garð Barbra Banda, leikmanns Orlando Pirate.
Atvikið átti sér stað í 2-0 sigri Orlando Pride á Gotham FC á Sports Illustrated-vellinum í New York um liðna helgi. Gotham hefur beðið Orlando afsökunar á atvikinu. Þá er rannsókn í fullum gangi. „Svona hegðun er ekki boðleg og á ekki heima í deildinni okkar né á leikvöngunum okkar. Við leggjum okkur fram við að skapa öruggt umhverfi fyrir öll, sérstaklega leikmennina sem eru meðal þeirra bestu í íþróttinni okkar,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu deildarinnar og beggja liða. „Barbra Banda er bæði framúrskarandi leikmaður sem og manneskja. Við erum stolt af því að hún sé hluti af deildinni okkar,“ segir einnig yfirlýsingunni. Þar segir Gotham einnig að öryggisverðir vallarins hafi brugðist rétt við, rætt við viðkomandi einstakling og fylgst með það sem eftir lifði leiks. Hin 25 ára gamla Banda var valin leikmaður ársins í kvennaboltanum af breska ríkisútvarpinu, BBC, á síðasta ári eftir að hún skoraði 17 mörk í NWSL-deildinni og hjálpaði Orlando Pride að vinna sinn fyrsta meistaratitil. Þá skoraði hún fjögur mörk fyrir Sambíu á síðustu Ólympíuleikum og er nú markahæsti leikmaður Afríku í sögu leikanna með 10 mörk.
Fótbolti Bandaríski fótboltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Fleiri fréttir „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki Sjá meira