Sjálfsfróun. Rúnk. Handrið. Klappa rottunni. Flengja apann. Temja drekann. Fara út með hundinn. DJ-a. Sama hvað við köllum það þá hefur umræðan um sjálfsfróun heldur betur þróast og breyst! Sjálfsfróun veldur ekki blindu, höfuðverkjum, hárvexti í lófa eða breytingum á kynfærum. Í gegnum aldirnar hafa þó hinar ýmsu mýtur verið á sveimi um sjálfsfróun oft með það að markmiðið að draga úr því að fólki stundi það að fróa sér.
Kynlífið með Aldísi, sálfræðingi og kynlífsráðgjafa, er vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Aldís lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Lesendur eru hvattir til þess að senda Aldísi spurningar í spurningaformi sem er neðar í greininni.

Í dag er sjálfsfróun enn tabú! Ég heyri stundum frá fólki í langtíma sambandi að það eigi ekki að stunda sjálfsfróun ef þú ert í sambandi. Sum óttast að ef þú fróar þér þá muni löngun þín í kynlíf minnka. Sjálfsfróun er góð leið til að hlúa að eigin þörfum, losa spennu og er frábær leið til að kynnast eigin löngunum og kynfæri.
Það að stunda sjálfsfróun getur ýtt undir kynlöngun, sem getur einmitt leitt til þess að þú ferð að stunda kynlíf oftar. Mjög ósennilega mun aukin unaður og vellíðan bitna á kynlífi eða sambandinu.
Vissulega geta verið ástæður fyrir því að setja sjálfsfróun mörk en það er í þeim tilfellum þar sem sjálfsfróun er farin að hafa slæm áhrif á líðan, fer yfir eigin mörk eða annarra eða þegar viðkomandi hefur ekki lengur stjórn á eigin sjálfsfróun eða klám áhorfi. Í þessum tilfellum er sjálfsfróunin oft farin að hafa verulega neikvæð áhrif á sambandið eða eigin líðan.
En aftur að spurningunni. Þú ert ekki einn um þetta kæri lesandi! Mörg upplifa mun á fullnægingu í sjálfsfróun og kynlífi. Það er vert að skoða hvað er öðruvísi í sjálfsfróun og kynlífi hjá þér? Hvað stuðlar að fullnægingu þegar þú ert einn?

Í sjálfsfróun er oft minna áreiti, þú hefur fulla stjórn á aðstæðum, þú veist nákvæmlega hvernig þér finnst gott að fróa þér og hversu þétt þú vilt láta taka utan um liminn. Ertu að horfa á klám eða lesa erótíska sögu? Ertu að fantasera um eitthvað ákveðið? Ertu afslappaðri því þú ert að minna að fókusera á frammistöðu þína?
Þegar við erum komin á þann stað að eiga erfitt með að fá fullnægingu nema við ákveðnar aðstæður er hægt að gera eitt annað til að vinna í því.

- Prófaðu að auka fjölbreytni í sjálfsfróun. Stundaðu sjálfsfróun með múffu, sleipiefni eða notaðu þá hönd sem þú notar sjaldnar. Æfðu þig að taka ekki eins fast utan um liminn. Fyrir áhugasöm er hægt að gúggla Death Grip Syndrome, en með tímanum getur of þétt grip byrjað ákveðin vítahring sem getur leitt til þess að það er erfiðara að fá það með maka.
- Ef þú ert orðinn vanur því að horfa á klám prófaðu að sleppa því og nota ímyndunaraflið.
- Taktu pásu frá sjálfsfróun ef þú finnur að það er erfitt að gera þessar ofantöldu breytingar á þinni sjálfsfróun. Svo er hægt að byrja rólega á ný þegar kynlöngun kviknar í stað þess að stunda sjálfsfróun út frá vana.
- Taktu pressuna af þér með því að ræða við maka. Það er mikilvægt að kynlíf snúist ekki um frammistöðu, eða fullnægingu, heldur um unað og vellíðan. Með því að taka pressuna af er auðveldara að njóta og slaka betur á, sem getur frekar leitt til þess að þú fáir það.
- Þú getur líka sett sjálfsfróun inn í kynlíf með maka/bólfélaga. Með því að fá fullnægingu í kynlífið tengiru smátt og smátt kynlíf við fullnægingar á ný.
- Talaðu um það sem þér finnst gott og taktu þínar fantasíur með þér inn í kynlífið. Fantasíur þurfa ekki að verða að veruleika en leyfðu þér að hugsa um það sem kveikir í þér, líka þegar þú ert að stunda kynlíf.
- Ef þú hefur ekki rætt það sem þér finnst gott við maka/bólfélaga er aldrei of seint að byrja það samtal.
Fullnæging er ekki mælikvarði á gott kynlíf. En ef þig langar að njóta meira í kynlífi með öðrum, þá skiptir máli að vera forvitinn, opinn og prófa að gera breytingar.
Gangi þér vel <3
Allar greinar eftir Aldísi þar sem hún svarar fjölbreyttum spurningum lesenda má finna á sama stað á Vísi.