Ætlar í stríð við Kim leyfi hún North ekki að rappa á lagi með Diddy Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. mars 2025 10:50 Kanye vill gefa út lag með Diddy og dóttur sinni North en Kim ætlar ekki að leyfa því að gerast. Getty Kanye West gaf út lag með dóttur sinni North og Sean „Diddy“ Combs um helgina en rapp North á laginu virðist vera í óþökk Kim Kardashian, fyrrverandi eiginkonu West. Búið er að eyða laginu en fyrir útgáfuna sagðist West ætla í stríð við Kim ef hún kæmi í veg fyrir útgáfuna.
Hinn 47 ára West birti færslu á X (áður Twitter) á laugardaginn 15. mars þar sem hann deildi nýju lagi, „Lonely Roads Still Go to Sunshine“. „LONELY ROADS STILL GO TO SUNSHINE, nýtt lag eftir PUFF DADDY með syni hans KING COMBS, dóttur minni NORTH WEST og nýjum Yeezy-tónlistarmanni frá Chicago, Jasmine Williams,“ skrifaði Kanye í færslunni sem er nú búið að eyða. Þakkar West fyrir uppeldi barnanna Lagið sem er um fimm mínútna langt hefst á símasamtali West við Sean „Diddy“ Combs, sem situr í fangelsi og bíður réttarhalda sinna í New York í maí. Combs er þar ákærður fyrir fjölda brota, þar á meðal mansal, skipulagða glæpastarfsemi og nauðganir. „Ég vil bara þakka þér svo mikið fyrir að annast börnin mín, maður. Og það hefur enginn haft samband við mig,“ segir rödd sem virðist vera Combs. „Algjörlega, ég elska þig svo mikið, maður. Það er eins og þú hafir alið mig upp, jafnvel þegar ég þekkti þig ekki, veistu hvað ég meina?“ svarar þá Kanye. Combs er skráður framleiðandi lagsins en hinn 26 ára Christian „King“ Combs og hin ellefu ára North West rappa hvort sitt versið. Hlusta má á brot úr laginu sem aðdáendasíða West hefur deilt á X hér að neðan: LONELY ROADS STILL GO TO SUNSHINE YE KANYE WESTPUFF DADDY feat.KING COMBS (PUFF Son)NORTH WESTJASMINE WILLIAMS (new Yeezy artist from Chicago) NEW SONG pic.twitter.com/CAQycwkACz— YEFANATICS (@yefanatics) March 15, 2025 Hótar lögsókn á hendur barnsföðurnum Dægurmálamiðillinn TMZ hefur eftir nokkrum heimildarmönnum að Kim Kardashian hafi gert allt til að koma í veg fyrir að Kanye gæfi lagið úr. North á að hafa heimsótt föður sinn í tónlistarstúdíóið nýlega og tekið upp línurnar fyrir lagið. Hann hafi þá sagt henni að það kæmi út á næstu sunnudagstónleikum sínum, Sunday Service. Mæðgurnar North West og Kim Kardashian á leik LA Lakers í ágúst 2024. Getty TMZ heldur því fram að þegar Kim komst að útgáfu lagsins hafi hún hótað Kanye lögsókn. Í kjölfarið hafi verið haldinn fundur með dómara og sáttasemjara. Kanye sjálfur hafi ekki verið viðstaddur en fulltrúi hans lofað því að lagið yrði ekki gefið út. Samkvæmt TMZ vill Kim ekki sjá North koma nálægt hegðun Kanye, sem hefur ítrekað lýst því yfir að hann sé nasisti haldinn gyðinga-andúð, á opinberum vettvangi eða nokkru sem viðkemur Diddy í ljósi ákæranna sem hann á yfir höfði sér. Hótar stríði ef hún leyfir ekki útgáfu lagsins Skjáskot af meintum textaskilaboðum Kanye og Kim sem rapparinn birti á X skömmu fyrir útgáfu lagsins virðast renna stoðum undir fréttaflutning Tmz. Skjáskot af færslu West þar sem hann segist ekki vera að grínast. Á skjáskotinu segist Kanye aldrei ætla að tala við barnsmóður sína aftur. Virðist það vera vegna þeirra lagalegu aðgerða sem Kim greip til. Kim svarar honum og segist hafa skráð nafn North sem vörumerki. Hann hafi sjálfur gefið leyfi fyrir því og vörumerkið verði eign North þegar hún nær átján ára aldri. „Hættu svo. Ég sendi pappírana til þín svo hún yrði ekki í Diddy-laginu til að vernda hana,“ skrifar hún svo. „Við samþykktum þegar þau fæddust að ég fengi nöfn barnanna og vörumerki þeirra. Svo enginn annar myndi taka þau.“ „Leiðréttu þetta eða ég fer í stríð,“ svaraði þá West og bætti við: „Hvorugt okkar mun jafna sig á opinberu afleiðingunum. Þú verður að drepa mig.“ Þessari færslu er rapparinn hins vegar búinn að eyða, rétt eins og færslunni með laginu. Sömu sögu er að segja með mynd sem hann deildi af hakakrossi á laugardaginn sem hann sagði að yrði plötuumslag næstu pltöu sinnar. Umslag næstu plötu West að hans sögn. Enn eru þó nokkur tvít inni á síðu West. Þar á meðal færslur þar sem hann segir „Maðurinn tekur lokaákvörðunina“ og „Allir kóngar elska að fara í stríð“. Vænta má að sú síðarnefnda tengist „stríðs“-yfirlýsingu hans við Kim. ALL KINGS LOVE WAR— ye (@kanyewest) March 16, 2025
Mál Kanye West Tónlist Hollywood Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Arnar og Sara gáfu syninum nafn Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Sjá meira