Fyrstur allra með þrennu á Nývangi og Santiago Bernabéu í Meistaradeild Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. febrúar 2025 16:46 Hvað gerðirðu mörg mörk? Þrjú, segirðu. getty/M Gracia Jimenez Kylian Mbappé náði merkum áfanga þegar hann skoraði öll þrjú mörk Real Madrid í 3-1 sigri á Manchester City í seinni leik liðanna í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Mbappé skoraði eitt marka Real Madrid í dramatískum 2-3 sigri á City á Etihad í síðustu viku. Hann var svo í miklu stuði í gær og skoraði þrennu í öruggum 3-1 sigri Evrópumeistaranna sem unnu einvígið, 6-3 samanlagt. Mbappé er nú eini leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar sem hefur skorað þrennu á Santiago Bernabéu og Nývangi, heimavelli Barcelona, tveimur af sögufrægustu fótboltavöllum heims. Fyrir fjórum árum, nánast upp á dag (16. febrúar 2021), skoraði Mbappé þrennu þegar Paris Saint-Germain sigraði Barcelona, 1-4, á Nývangi í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Mbappé skoraði einnig mark PSG í seinni leiknum sem endaði með 1-1 jafntefli. Mbappé hefur verið í miklum ham á þessu ári og skorað fjórtán mörk í fjórtán leikjum. Alls hefur hann skorað 28 mörk á sínu fyrsta tímabili fyrir Real Madrid. Hinn 26 ára Mbappé hefur skorað 55 mörk í 83 leikjum í Meistaradeildinni. Hann er áttundi markahæstur í sögu keppninnar. Það kemur í ljós á morgun hvort Real Madrid mætir Atlético Madrid eða Bayer Leverkusen í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira