Sjáðu mark Glódísar í bikarsigrinum Valur Páll Eiríksson skrifar 13. febrúar 2025 13:46 Glódís og stöllur hennar fagna marki Momoko Tanikawa í leik gærkvöldsins. Adam Pretty/Getty Images Glódís Perla Viggósdóttir kom Bayern Munchen í forystu snemma í framlengingu er Bayern sló Eintracht Frankfurt úr leik í þýsku bikarkeppninni í fótbolta í gær.
Töluverð eftirvænting var fyrir leik gærdagsins í Munchen en Bayern og Frankfurt eru jöfn að stigum á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar. Það mátti búast við jöfnum leik, sem úr varð. Frankfurt komst yfir á 80. mínútu vegna sjálfsmarks Carly Simon og stefndi í að Bæjarar myndu falla úr leik. Serbneski framherjinn Jovana Damjanovic kom til bjargar á 90. mínútu og leikurinn því framlengdur. Klippa: Mark Glódísar gegn Frankfurt Glódís Perla kom Bayern svo yfir strax á þriðju mínútu framlengingarinnar með fagmannlegri og framherjalegri vinstri fótar afgreiðslu eftir fyrirgjöf frá vinstri. Japanska landsliðskonan Momoko Tanikawa skoraði þriðja mark Bayern áður en Damjanovic gerði út um leikinn með sínu öðru marki. Bayern er því komið í undanúrslit bikarkeppninnar og freistar þess að vinna hana í fyrsta skipti síðan árið 2012. Wolfsburg hefur einokað bikartitilinn undanfarin ár en Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði með liðinu er það tapaði óvænt fyrir Hoffenheim í gær. Þá féll Karólína Lea Vilhjálmsdóttir einnig úr keppni en lið hennar Leverkusen tapaði einnig óvænt á heimavelli fyrir Werder Bremen. Mörkin úr leik Bayern og Frankfurt má sjá í spilaranum að ofan.
Þýski boltinn Fótbolti Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira