Innlent

Hellis­heiði lokað vegna fastra bíla

Samúel Karl Ólason skrifar
Úr röðinni Reykjavíkurmegin við Hellisheiði.
Úr röðinni Reykjavíkurmegin við Hellisheiði.

Hellisheiðinni var lokað upp úr klukkan sex í kvöld. Það var gert eftir að tveir bílar festust á heiðinni. Að minnsta kosti annar þeirra þverar veginn við í Skíðaskálabrekkunni.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er dráttarbíll á leiðinni og er verið að reyna að vinna úr flækjunni en það ku ganga illa, samkvæmt Vegagerðinni.

Fréttastofu hefur borist myndir sem sýna fjölmarga bíða Reykjavíkurmegin við heiðina eftir því að komast yfir hana.

Þrengslunum var einnig lokað um tíma vegna fannfergis en búið er að opna aftur en hann er einungis opinn með fylgdarakstri. Samkvæmt Vegagerðinni verður fyrst farið frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur og í kjölfarið aftur til baka til Þorlákshafnar. Fara á seinni ferðina um 19:45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×