Lífið samstarf

Nýtt serum gegn hrukkum vegna sykurs

Beiersdorf
Nýja serumið frá NIVEA strax frá fyrsta degi og dregur sýnilega úr jafnvel djúpum hrukkum á aðeins tveimur vikum.
Nýja serumið frá NIVEA strax frá fyrsta degi og dregur sýnilega úr jafnvel djúpum hrukkum á aðeins tveimur vikum.

Sykur úr sætindum, ávöxtum og öðrum matvælum getur haft áhrif á húðina okkar og skert teygjanleika hennar. 

NIVEA Q10 Dual Action Serum með nýja innihaldsefninu GLYCOSTOPTM sem hindrar ferlið. Það er einnig með hreinu Q10 sem dregur sýnilega úr djúpum hrukkum innan frá.

Streita getur valdið útbrotum, of lítill svefn getur gert húðina gráleita og of mikið sólarljós getur brennt hana. Við vitum öll að bæði ytri og innri þættir geta haft mikil áhrif á húðina okkar og útlit hennar getur sagt margt um almennt ástand okkar. 

En vissir þú að sykur getur einnig haft áhrif á húðina og útlit hennar? Of mikill sykur veikir kollagen og elastín í húðinni og veldur tapi á náttúrulegri virkni þeirra sem leiðir til að húðin missir teygjanleika sinn. Þetta ferli kallast glýkering (sykrun). 
Nú er í fyrsta skipti hægt að koma í veg fyrir frekari sykurtengdan skaða á húðinni með NIVEA Q10 Dual Action Seruminu.

Í dag er sykur í næstum öllu sem við neytum. Þess vegna er erfitt að forðast glýkeringu, sérstaklega ef við viljum njóta sætrar hliðar lífsins einstöku sinnum. Þökk sé húðsérfræðingum NIVEA er nú í fyrsta skipti hægt að koma í veg fyrir frekari sykurtengdan skaða á húðinni og jafnvel draga úr hrukkum sem þegar hafa myndast með nýja NIVEA Q10 Dual Action Serum.

Hindraðu hrukkur innan frá

„Stinn húð er oft tengd unglegu útliti og lífsgleði – eiginleikar sem margir vilja viðhalda,“ segir Dr. Ute Breitenbach, sérfræðingur í rannsóknum og þróun hjá NIVEA. Hún bætir við að það sé ekki að ástæðulausu að vörur gegn öldrun séu sérstaklega eftirsóttar eins og neytendarannsóknir sýna. 

Dr. Ute Breitenbach, sérfræðingur í rannsóknum og þróun hjá NIVEA.

„Eftir meira en 25 ára rannsóknir á húðvörum gegn ótímabærri öldrun erum við afar stolt af því að hafa þróað nýja formúlu með GLYCOSTOPTM sem virku innihaldsefni gegn öldrun. Það hindrar glýkeringu á frumustigi og verndar þannig kollagen húðarinnar gegn skaða af völdum sykurs.“ útskýrir Dr. Ute Breitenbach.Kostir nýja NIVEA Q10 Dual Action serumsins hafa verið klínískt staðfestir. Það kemur í veg fyrir myndun nýrra hrukkna og dregur á sama tíma úr þeim sem þegar hafa myndast – innan frá.

Nýja serumið sameinar byltingarkennda háþróaða GLYCOSTOPTM tæknina og árangursríka og áreiðanlega vörn gegn hrukkum, NIVEA Q10. Tvö virk efni sem vinna saman til að ná hámarksárangri fyrir húðina með tvíþættum áhrifum: að hindra myndun nýrra hrukkna, með því að stöðva glýkeringu sykurs á frumustigi og draga virklega úr eldri hrukkum. Nýja serumið byrjar að virka strax frá fyrsta degi og dregur sýnilega úr jafnvel djúpum hrukkum á aðeins tveimur vikum.

Nýja serumið sameinar byltingarkennda háþróaða GLYCOSTOP tæknina og árangursríka og áreiðanlega vörn gegn hrukkum, NIVEA Q10.

NIVEA Q10 Dual Action Serum er öflug viðbót við daglega húðumönnun og er fjórum sinnum áhrifaríkara en að nota NIVEA Q10 dagkremið eitt og sér. Þannig dregur það fram það besta í húð fólks með einfaldri og áhrifaríkri húðrútínu sem kemur í veg fyrir og dregur úr hrukkum.

Hvað er glýkering?

Glýkering er náttúrulegt, óafturkræft efnahvarf. Það gerist í hvert sinn sem sykur verður fyrir hita, til dæmis þegar karamellusælgæti er framleitt. Í þessu ferli tengjast sykursameindir próteinum eða fituefnum sem leiðir til myndunar svokallaðra glýkerkinga afurða (advanced glycation end-products = AGEs). Þessi ”AGEs” geta haft alvarleg áhrif á heilsu og virkni húðarinnar og hraðað öldrunarferli með því að skaða kollagen, elastín og húðfrumurnar sjálfar. 

Prótein eins og kollagen og elastín standa fyrir teygjanleika og stinnleika húðarinnar. ”AGEs” safnast upp í húðinni með aldrinum og magnast upp vegna ytri áhrifa, t.d. útfjólublárrar geislunar, sem veldur ótímabærum hrukkum, tapi á teygjanleika, þreytu í húð og gulri áferð. Vegna þeirra geta bólguferlar aukist og viðgerðarferlar minnkað.

Serumið kemur í hágæða dropateljara úr gleri sem er ekki aðeins úr endurunnu gleri heldur er það einnig endurvinnanlegt.

Um GLYCOSTOPTM

Nýstárlega NIVEA Q10 Dual Action serumið inniheldur GLYCOSTOPTM sem hluta af háþróaðri formúlu gegn glýkeringu. Eftir 10 ára rannsóknir og skoðun á yfir 1700 virkum innihaldsefnum fundu og staðfestu húðvísindamenn Beiersdorf öflugt virkt efni gegn glýkeringu: GLYCOSTOPTM

Það dregur verulega úr glýkeringa ferlinu með því að hlutleysa sykursameindir áður en þær geta bundist próteinum. Auk þess verndar efnið byggingarþræði húðarinnar og viðheldur stinnleika og teygjanleika kollagens (in vitro), jafnvel þegar húðin verður fyrir ytri álagsþáttum. Í fyrsta skipti eru tvö öflug innihaldsefni sem vinna gegn öldrun sameinuð: GLYCOSTOPTM gegn glýkeringu og Q10 andoxunarefni.

Q10 Anti-wrinkle Expert Dual Action serum uppfyllir háa gæðastaðla

Formúlan uppfyllir háar sjálfbærnikröfur NIVEA með því að vera án sílikons, jarðolíu og ólífrænna fjölliða. Hið öfluga serum skilar húðinni sýnilega mýkri og sléttari með léttri formúlu sem frásogast hratt og klístrast ekki. Serumið kemur í hágæða dropateljara úr gleri sem er ekki aðeins úr endurunnu gleri heldur er það einnig endurvinnanlegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.