Fótbolti

Hákon kom að marki í stór­sigri og Lille tryggði sig beint á­fram

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson „skoraði“ fimmta mark Lille.
Hákon Arnar Haraldsson „skoraði“ fimmta mark Lille. MB Media/Getty Images

Hákon Arnar Haraldsson kom að marki í 6-1 stórsigri Lille gegn Stuttgart og liðið tryggði sig beint áfram í sextán liða úrslit. Stuttgart er úr leik, eina liðið sem var í umspilssæti en datt út. Aston Villa tókst einnig að tryggja sig beint áfram með 4-2 sigri gegn Celtic.

Hákon kom inn á 63. mínútu fyrir Angel Gomes og skoraði fimmta mark Lille. Skot hans rataði á markið en var varið, frákastið skoppaði svo af varnarmanni og í netið. Skráð sem sjálfsmark.

Lille og Aston Villa komast beint áfram á kostnað AC Milan (tapaði gegn Dinamo Zagreb) og Atalanta (gerði jafntefli við Barcelona).

Sigur Lille þýðir að Stuttgart er úr leik, liðið var í 24. sæti fyrir leik en datt niður í 26. sæti. Manchester City tók umspilssætið sem Stuttgart átti fyrir leik.

Man. City, Club Brugge og Sporting eru með jafnmörg stig í 22. -24. sæti, Dinamo Zagreb er einnig með ellefu stig en situr í 25. sæti, utan umspils, vegna slakrar markatölu.

Juventus og Celtic eru svo í 20. – 21. sæti með tólf stig. Brest, Mónakó, Benfica og PSG eru þar fyrir ofan með þrettán stig. PSV er í 14. sæti með fjórtán stig.

Liðin í 9. – 14. sæti eru svo jöfn með fimmtán stig. Þar endar Atalanta efst, Borussia Dortmund, Real Madrid, Bayern Munchen og AC Milan fylgja svo eftir.

Staðan í Meistaradeildinni eftir lokaumferðina. Önnur lið áttu ekki möguleika á því að komast áfram.vísir

Barcelona gerði 2-2 jafntefli við Atalanta og mistókst að taka toppsætið af Liverpool, sem tapaði gegn PSV.

Börsungar enda því í öðru sæti, með betri markatölu en Arsenal sem vann 2-1 gegn Girona, og betri markatölu en Inter sem vann 3-0 gegn AS Monaco.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×