Erlent

Sau­tján ára máli Amöndu Knox lýkur með sak­fellingu

Samúel Karl Ólason skrifar
Amanda Knox ásamt eiginmanni sínum og lögmanni í Flórens í fyrra.
Amanda Knox ásamt eiginmanni sínum og lögmanni í Flórens í fyrra. AP/Antonio Calanni

Hæstiréttur Ítalíu hefur staðfest úrskurð neðra dómstigs um að Amanda Knox sé sek um meiðyrði. Markar það mögulega endann á sautján ára dómsmálum og lögsóknum eftir að hún var sökuð um, og seinna meir dæmd fyrir, að myrða Meredith Kercher, meðleigjanda sinn, árið 2007.

Knox sjálf tilkynnti að Kercher var látin í íbúð þeirra í miðbæ Perugia en hún hafði verið skorin á háls.

Málið hefur í gegnum árin notið mikillar athygli og hefur meðal annars verið fjallað um það í heimildarmynd á Netflix.

Knox og Raffaele Sollecito, þáverandi kærasti hennar, voru árið 2008 sakfelld fyrir að myrða Kercher og voru dæmd í 25 og 25 ára fangelsi. Hún var einnig sakfelld fyrir að saka Patrick Lumumba, bareiganda, um að hafa framið morðið.

Eftir að hafa setið inni í á fjórða ár voru Knox og kærastinn sýknuð um morðið af Hæstarétti Ítalíu árið 2015 og var þjófurinn Rudy Guede síðar meir sakfelldur fyrir morðið. Blóðug fingraför hans fundust á munum í herbergi Kercher.

Guede var dæmdur í sextán ára fangelsi en árið 2019 var honum sleppt á reynslulausn og er nú laus allra mála. Hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu.

Mannréttindadómstóll Evrópu skipaði ítalska ríkinu árið 2019 að greiða Knox skaðabætur. Var það vegna þess að henni hafði ekki verið útvegaður lögmaður né túlkur við yfirheyrslur.

Sjá einnig: Ítalska ríkinu gert að greiða Amöndu Knox bætur

Knox var einnig sýknuð af sakfellingunni fyrir meiðyrði í garð Lumumba á sínum tíma en sakfelld aftur, þegar ný réttarhöld fóru fram. Hún hefur reynt að áfrýja þeim úrskurði.

Sjá einnig: Amanda Knox dæmd fyrir meiðyrði þrettán árum eftir sýknu

Washington Post hefur eftir Lumumba frá því í gær að Knox, sem hann hafði ráðið til vinnu á bar sínum í Perugia, hafi aldrei beðið hann afsökunar. Sagðist hann vona að gjörðir hennar myndu fylgja henni til æviloka.

Knox, sem var tvítug þegar hún benti á Lumumba, heldur því fram að hún hafi gert það vegna þrýstings frá lögreglumönnum sem yfirheyrðu hana. Hún hefur ekki staðið frammi fyrir frekari fangelsisvist vegna málsins en hefur sagt að þeta sé tilraun til að hreinsa nafn hennar fyrir fullt og allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×